Stuðningur við börn og fjölskyldur
Ráðgjöf og stuðningur er veittur í gegnum barna- og fjölskylduteymi á velferðarsviði. Bókaðu samtal til að fá ráðgjöf og finna úrræði sem henta þínum aðstæðum.
Börn og fjölskyldur í Kópavogi geta fengið ráðgjöf og fjölbreyttan stuðning þegar þörf er á, til dæmis vegna félagslegra aðstæðna, álags, veikinda eða fötlunar.
Markmið stuðningsins er að styrkja foreldra og forsjáraðila í uppeldishlutverki sínu og skapa börnum örugg og þroskavænleg uppeldisskilyrði.
Hvað þarf ég að vita?
Veitt er uppeldisráðgjöf og foreldrafræðsla, meðal annars á vegum Áttunnar, þar sem foreldrar fá leiðbeiningar og stuðning í uppeldi barna. Stuðningurinn getur einnig falist í aðstoð til foreldra við skipulag daglegs lífs, bæði innan og utan heimilis, sem og heimilishald.
Áhersla er lögð á að efla foreldra í hlutverki sínu og styrkja færni þeirra til að skapa börnum góð uppeldisskilyrði.
Einnig er stuðningurinn ætlaður börnum og fjölskyldum þeirra sem þurfa aðstoð vegna fötlunar, skerðinga, langvinnra veikinda og/eða félagslegra aðstæðna.
Stuðningur til barna getur meðal annars falið í sér:
- Einstaklingsstuðning fyrir börn á aldrinum 6–18 ára.
- Stuðningsfjölskyldu fyrir börn 0–18 ára.
- Skammtímadvöl fyrir fötluð börn sem þurfa mikinn stuðning.
Til að eiga rétt á stuðningi þurfa foreldrar, forsjáraðilar og börn að uppfylla ákveðin skilyrði. Þau þurfa að eiga lögheimili í Kópavogi og vera metin í þörf fyrir stuðning samkvæmt reglum.
Aðeins forsjáraðilar barns geta sótt um stuðning.
Fjölskyldur með lögheimili utan Kópavogs geta sótt um stuðning ef þörfin tengist fötlun, en þá er skilyrði að lögheimili verði skráð í Kópavogi þegar stuðningur hefst.
Fyrsta skrefið er að bóka viðtal við ráðgjafa á velferðarsviði. Í bókunarkerfinu sérðu lausa tíma og velur þann sem hentar þér. Einnig er hægt að hafa samband í síma 441 0000 eða senda umsókn í gegnum Minn Kópavogur. Ráðgjafi hefur þá samband.
Í kjölfarið er metið hvaða stuðningur hentar fjölskyldunni og umsókn unnin ef við á.
Þegar umsókn liggur fyrir fer fram formlegt mat á stuðningsþörf fjölskyldunnar. Matið tekur mið af stöðu fjölskyldunnar með tilliti til eftirfarandi þátta:
- Færni, geta og styrkleikar.
- Félagslegar aðstæður og tengslanet.
- Virkni og þátttaka í samfélaginu.
- Hvaða afleiðingar seinkun á stuðningi hefur fyrir fjölskylduna.
- Annar stuðningur.
Við formlegt mat á stuðningsþörf er litið til heildaraðstæðna fjölskyldunnar. Ef matið leiðir í ljós að ekki er talin þörf á stuðningi er umsókn synjað. Sé umsókn samþykkt vinnur ráðgjafi stuðningsáætlun í samvinnu við fjölskylduna.
Í stuðningsáætlun er meðal annars skilgreint:
- Hvaða stuðningur er veittur?
- Hver eru markmiðin?
- Hvernig er árangur metinn?
- Hvernig er stuðningi háttað?
Áttan - Uppeldisráðgjöf
Áttan er úrræði sem veitir foreldrum ráðgjöf og stuðning í uppeldi og umönnun barna. Starfsfólk Áttunnar hefur áratuga reynslu af uppeldisráðgjöf og bjóða upp á mismunandi úrræði eftir þörfum foreldra.
Foreldrar barna með vægan hegðunarvanda geta sótt um að fá allt að 6 stuðningsviðtöl hjá ráðgjafa Áttunnar á skrifstofu velferðarsviðs.
Áhersla er á að kenna foreldrum aðferðir við að:
- Fá barn í samvinnu.
- Styrkja tengsl.
- Skapa rútínur.
Nokkurra mánaða bið er eftir viðtölum.
Áttan -uppeldisráðgjöf hentar þeim foreldrum sem óska eftir lengri vinnslu en nokkur viðtöl.
Ráðgjafar Áttunnar hitta foreldra vikulega og vinna með þeim að því að greina vanda og setja skýr markmið. Vinnan varir að jafnaði í um 12-16 vikur og fer aðallega fram á skrifstofu velferðarsviðs þar sem foreldrar læra aðferðir til að beita heima. Í sumum tilfellum fara ráðgjafar einnig heim til foreldra.
Áhersla er lögð á að:
- Styrkja tengsl og samskipti foreldra og barns
- Efla samvinnu
- Skapa skýrar rútínur.
Oft er unnið í samstarfi við leik- og grunnskóla barnsins meðan á vinnslu málsins stendur.
Hægt er að bóka viðtal við ráðgjafa á velferðarsviði með því að smella á hnappinn hér að neðan eða hringja í síma 441-0000.
Nokkurra mánaða bið er eftir þjónustunni.