Garðyrkjustjóri Kópavogs fær heiðursverðlaun

Friðrik Baldursson og Guðni Th. Jóhannesson.
Friðrik Baldursson og Guðni Th. Jóhannesson.

Friðrik Baldursson, garðyrkjufræðingur og garðyrkjustjóri Kópavogs, fékk heiðursverðlaun garðyrkjunnar árið 2024 sem veitt voru við hátíðlega viðhöfn í Garðyrkjuskólanum sumardaginn fyrsta.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Friðrik verðlaunin sem veitt eru ár hvert til einstaklinga sem skarað hafa fram úr á sviði garðyrkju að mati atvinnulífs garðyrkjunnar og Garðyrkjuskólans.

Friðrik hefur verið garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar frá árinu 1993 en gegndi áður starfi garðyrkjufulltrúa. Friðrik er fæddur og uppalinn Kópavogsbúi sem gert hefur það að sínu ævistarfi að „fegra og rækta Kópavog,“ eins og það var orðað í ávarpi forseta.

Friðrik nam skrúðgarðyrkju hjá þáverandi garðyrkjufulltrúa Kópavogsbæjar, Kristjáni Inga Gunnarssyni, og tók við af honum 1985. Árið 1993 tók hann við stöðu garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar af Einari E. Sæmundsen og hefur sinnt því starfi síðan. Friðrik útskrifaðist sem garðyrkjufræðingur vorið 1984 og hlaut meistararéttindi í skrúðgarðyrkju árið 1988 hjá Hermanni Lundholm. Hann lauk síðan diplómanámi í skrúðgarðyrkjutækni frá Garðyrkjuskólanum 2005, en þar var hann í um 20 ára skeið fulltrúi í fagnefnd skrúðgarðyrkju frá árinu 1998.

Friðrik var í 5 ár formaður Samtaka garðyrkju- og umhverfisstjóra sveitarfélaga (SAMGUS) og hefur átt sæti í fjölda starfshópa er varða skrúðgarðyrkjufagið og fleira tengt garðyrkju og ræktun. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir sín störf á löngum ferli.

Í frítíma sínum hefur Friðrik tekið saman heildaryfirlit yfir þær tegundir trjáa og runna sem hafa verið ræktaðar á Íslandi í gagnagrunninum Berki og er hann uppfærður árlega með upplýsingum um það hvar viðkomandi plöntur eru til sölu. Sambærilegt rit um fjölærar plöntur hefur einnig litið dagsins ljós. Í gegnum tíðina hefur Friðrik komið að kennslu á skrúðgarðyrkjubraut Garðyrkjuskólans og námskeiðum og fjöldi nemenda hefur einnig verið í verknámi undir hans handleiðslu.

Kópavogsbær er stoltur af því að hafa Friðrik í röðum starfsfólks en hann hefur sannarlega lagt sitt af mörkum til að gera bæinn okkar fallegan og gróðursælan. Til hamingju.