Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Aðventuhátíð
Upphafi aðventu er fagnað við Menningarhúsin í Kópavogi fyrstu helgina í aðventu með jóladagskrá, jólaþorpi og tendrun jólaljósa.
Í Salnum, Gerðarsafni, Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs eru listsmiðjur, jólatónleikar, upplestur og fleira, gestum að kostnaðarlausu. Einnig er dagskrá í Gjábakka.