Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Skráning og afskráning í mötuneyti Álfhólsskóla, Hörðuvallaskóla, Kársnesskóla, Kópavogsskóla, Kóraskóla, Lindaskóla, Salaskóla, Snælandsskóla og Vatnsendaskóla fer fram í gegnum Þjónustugátt Völu.
Í Smáraskóla er aðkeyptur matur frá Skólamat.
Ef sótt er um áskrift eftir að skólaár er hafið tekur áskrift gildi frá og með skráningardegi.
Frestur til þess að breyta eða segja upp áskrift er til 20. hvers mánaðar og tekur gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir.
Breytingar er ekki gerðar afturvirkt.
Gjöld eru ekki felld niður vegna fjarveru svo sem veikindi hjá nemendum og ekki er veittur neinn afsláttur af mataráskrift.
Gjaldskrá tekur gildi frá 1. apríl 2024
Samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs, nóvember 2023