Bæjarráð

3098. fundur 08. september 2022 kl. 08:25 - 10:22 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson, aðalmaður boðaði forföll og Sigvaldi Egill Lárusson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Kristín Guðmundsdóttir lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Anna Kristín Guðmundsdóttir lögfræðingur
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2008519 - Ósk um aðkomu Kópavogsbæjar að húsnæðismálum HSSK

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags 22.08.2022, lögð fram umsögn varðandi beiðni HSSK um nýtt húsnæði. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 01.09.2022.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfissviðs að ganga frá samningi við HSSK ásamt verk- og greiðsluætlun. Kaupsamningur verði lagður fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til samþykktar. Helga Jónsdóttir greiddi atkvæði á móti.

Bókun:
"1.
Valkostagreining sem lögð er fram hverfist einkum um verðmæti byggingarréttar, þar sem deiliskipulagstillaga er á byrjunarstigi og hefur ekki verið samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs. Fram kemur að breytingar í skipulagsferlinu muni hafa áhrif á verðmat byggingarréttarins.
2.
Ekki liggur fyrir hversu mikið land þarf vegna Borgarlínunnar.
3.
Í fyrirliggjandi greiningum liggur ekki fyrir hvernig nauðsynleg bátaaðstaða verður leyst. Hvorki liggur fyrir hvar við höfnina á að koma fyrir bátaskýli fyrir HSSK né heldur hvaða kostnaður fylgi þeirri uppbyggingu. Ekki er forsvaranlegt að ganga til samninga án þess að búið sé að leysa það mál og hvaða kostnað af því leiði.
Undirrituð telur ljóst að af hálfu bæjaryfirvalda sé málið vanbúið til ákvörðunar."
Helga Jónsdóttir

Bókun:
"Eftir mikla samráðsvinnu er það niðurstaðan að hagsmunum Kópavogsbæjar og HSSK sé best borgið með því að samþykkja erindið. Þar með er óvissu í framtíðaráformum Hjálparsveitarinnar tryggð og starfseminni fundinn staður í nýju húsnæði."
Orri Vignir Hlöðversson, Hjördís Ýr Johnson, Sigvaldi Egill Lárusson.

Bókun:
"Undirrituð telur þá tillögu sem hér liggur fyrir farsæla fyrir bæði Kópavogsbæ og Hjálpasveit skáta í Kópavogi. Stuðningur við erindið felur ekki í sér stuðning við þá skipulagstillögu sem liggur fyrir um reit nr. 13."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:29

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.22068205 - Útboð - Innkaup á salti til hálkueyðingar 2022-2025

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 05.09.2022, lagðar fram niðurstöður útboðs - innkaup á salti til hálkueyðingar. Lagt er til við bæjarráð að tilboði Saltkaupa ehf. verði samþykkt og gengið verði til samninga við fyrirtækið um útvegun á salti til hálkueyðinga 2022-2025.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að tilboð Saltkaupa ehf. verði samþykkt og gengið verði til samninga við fyrirtækið um útvegun á salti til hálkueyðingar 2022-2025.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2207200 - Hamraborg 3, Navú slf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 17.08.2022, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 14. júlí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Navú slf., kt. 430522-3370, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Hamraborg 3, 20 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25. ágúst sl.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.22067514 - Tónahvarf 12. Beiðni um heimild til framsals og veðsetningar lóðar.

Frá lögfræðideild, dags. 05.09.2022, lögð fram umsögn um beiðni um framsal og veðsetningu lóðarinnar Tómahvarf 12.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila framsal og veðsetningu á lóðinni Tónahvarf 12 í samræmi við minnisblað lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.22052032 - Dalvegur 26. Umsagnarbeiðni um staðsetningu ökutækjaleigu

Frá lögfræðideild, dags. 31.08.2022, lögð fram umsögn um rekstur og staðsetningu ökutækjaleigu í samræmi við beiðni Samgöngustofu frá 20.05.2022, þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar vegna staðsetningar ökutækjaleigu í sveitarfélaginu. Umsækjandi er Stanley Péteur Kowal, f.h. Restorfx ehf., kt. 680619-1580. Samkvæmt 3. gr. laga um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 65/2015 og 5. og 6. gr. rgl. nr. 840/2015 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að aðkoma og fjöldi bílastæða henti fyrir væntanlega starfsemi og hvort staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. Sótt er um rekstrarleyfi fyrir ökutækjaleigu með allt að einni bifreið að Dalvegi 26, 201 Kópavogi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Ýmis erindi

6.2208842 - Beiðni um kaup á hjóli fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins í Boðaþingi

Frá Hjólað óháð aldri, dags. 30.08.2022, lögð fram tillaga til bæjarráðs um að kaupa hjól fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins Boðaþingi.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar velferðarsviðs.

Ýmis erindi

7.2202198 - Samþykkt um hundahald

Frá Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, dags. 31.08.2022, lögð fram samþykkt um hundahald sem samþykktar voru í heilbrigðisnefnd mánudaginn 29. ágúst s.l. Heilbrigðisnefnd vísar þeim til bæjarstjórnar til umfjöllunar og samþykktar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

8.2209048 - Umsókn um aðstöðu fyrir söluskúr fyrir flugeldasölu

Frá Gullborg flugeldum ehf., dags. 01.09.2022, lögð fram umsókn um aðstöðu fyrir sölurskúr undir flugeldasölu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar bæjarstjóra.

Fundargerðir nefnda

9.2209018 - Fundargerð 912. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 26.08.2022

Fundargerð 912. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 26.08.2022
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10.2208858 - Fundargerð 6. fundar Heilbrigðisnefndar Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes frá 29.08.2022

Fundargerð 6.fundar Heilbrigðisnefndar Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes frá 29.08.2022
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11.2208840 - Fundargerð 108. fundar svæðisskipulagsnefndar frá 26.08.2022

Fundargerð 108. fundar svæðisskipulagsnefndar frá 26.08.2022
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.2208012F - Skipulagsráð - 126. fundur frá 05.09.2022

Fundargerð í 23 liðum.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 10:03. Fundi aftur fram haldið kl. 10:12.
  • 12.6 2208270 Leikskóli við Skólatröð. Óveruleg breyting á aðalskipulagi.
    Lögð fram tillaga umhverfissviðs að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Um er að ræða minni háttar lagfæringu á afmörkun á landnotkunarreitum þ.e. reitur fyrir leikskóla/samfélagsþjónustu, S-6, verður stækkaður til samræmis við lóðarmörk, enda hefur lóðin verið nýtt þannig um langa hríð. Á reitnum er/verði leikskóli en breytingar á húsnæði og nýbyggingar sem falla að nýtingu svæðisins sem samfélagsþjónustu eru heimilar.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 126 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir leikskólalóð við Skólatröð (S-6) með tilvísun í 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 12.8 2208095 Boðaþing 5 - 13, breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi Boðaþings 5-13
    Í breytingunni felst að innri byggingarreitur fyrir Boðaþing nr. 11 og nr. 13 breytist og færist fjær Boðaþingi 1-3. Gert er ráð fyri aðkomu þjónustubíla á norðurhluta lóðarinnar (sjúkra- sorp og matarbíla) með nýjum einbreiðum akvegi 3,5 til 4 m. á breidd sem liggur frá núverandi bílastæðum að nýjum þjónustuinngangi austan núverandi þjónustukjarna.
    Rökin fyrir umræddri breytingu liggja í ósk lóðarhafa um betra innra fyrirkomulag fyrirhugaðra bygginga til hagsbóta fyrir íbúa Boðaþings og til að auka vinnuhagræðingu hjá starfsfólki þar sem minni fjarlægð verður milli heimiliseininga.
    Aðkoma og lega bílastæða breytist.
    Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag samþykkt í bæjarstjórn 24. ágúst 2006 m.s.br. samþykkt 12. apríl 2016 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 26. apríl 2016.
    Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var afgreiðslu frestað.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 126 Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 12.16 2208035 Jöklalind 10, breytt deiliskipulag.
    Lögð fram tillaga Garðars Snæbjörnssonar arkitekts fh. lóðarhafa dags. 20. júní 2022 að breyttu deiliskipulagi "Vesturhluti Fífuhvammslands - Íbúðasvæði norðan Fífuhvammsvegar," samþykkt í bæjarstjórn 15. ágúst 1995 m.s.br. og staðfest af skipulagsstjóra ríkisins 12. september 1995. Breytingin nær aðeins til lóðarinnar nr. 10 við Jöklalind.
    Í breytingunni felst að breyta og stækka núverandi byggingarreit til austurs um 38,6 m² og koma þar fyrir tveggja herbergja aukaíbúð 52 m² að stærð, á einni hæð. Aðkoma að umræddri íbúð er á suðurhlið
    Meðfylgjandi eru uppdrættir í mælikvarða 1:100 og 1:500 ásamt greinargerð dags. 22. júní 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 126 Skipulagsráð hafnar framlagðri tillögu með sex atkvæðum, gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 12.17 2204079 Kársnesbraut 108, breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju tillaga Lárusar Ragnarssonar byggingarfræðings dags. 22. apríl 2022 fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 108 við Kársnesbraut.
    Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður til suðurs á 2. hæð um 2,7 metra og þaksvölum komið fyrir þar ofaná. Byggingarreitur er stækkaður að hluta til á norðurgafli til að koma fyrir svölum á 2. og 3. hæð. Á vesturhlið eru settar utanáliggjandi svalir og húsið klætt með klæðningu úr sementsbundnum plötum. Heildarstærð atvinnuhúsnæðis breytist úr 1.868 m² í 1.806 m² og íbúðarhúsnæðis úr 849 m² í 776.5 m². Nýtingarhlutfall lækkar úr 1.2 í 1.1. Gert er ráð fyrir 1,3 bílastæðum á hverja íbúð og einu stæði á hverja 100 m2 í atvinnuhúsnæði.
    Á fundi skipulagsráðs 2. maí 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Kársnesbrautar 106, 110, 123, 125, 127, 129 og Hafnarbrautar 10. Kynningartíma lauk 11. júlí 2022. Athugasemdir bárust.
    Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var erindið lagt fram ásamt innsendum athugasemdum og því frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar og byggingarfulltrúa.
    Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 3. september 2022 og umsögn byggingarfulltrúa dags. 30. ágúst 2022
    Niðurstaða Skipulagsráð - 126 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með fimm atkvæðum, gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur. Gunnar Sær Ragnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
    Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 12.20 2103898 Kópavogsbraut 69. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Sigðurðar Hallgrímssonar arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi á lóðinni nr. 69 við Kópavogsbraut. Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 29. mars 2021 var lögð fram tillaga Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi á lóðunum nr. 69 og 71 við Kópavogsbraut. Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir einni íbúð á einni hæð og kjallara að hluta til á hvorri lóð. Í breytingunni felst að íbúðum á lóðunum er fjölgað í tvær á hvorri lóð á einni hæð ásamt kjallara. Byggingarmagn á lóðunum eykst um 126 m² á hvorri lóð, úr 230 m² í 356 m². Bílastæðum fjölgar úr þremur í fjögur á hvorri lóð.
    Skipulagsráð samþykkti með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu.
    Kynningartíma lauk 14. janúar 2022. Athugasemdir og ábendingar bárust, þar á meðal ábending um ósamræmi í kynningargögnum. Það var mat skipulagsdeildar að greint ósamræmi hafi getað torveldað hagsmunaaðilum að meta umfang þeirrar breytingar sem lögð var til. Kynningargögn hafa verið leiðrétt og hefur tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðanna nú verið kynnt að nýju. Tillögunni hefur ekki verið breytt að öðru leiti.
    Eftirfarandi leiðréttingar voru gerðar á kynningargögnunum:
    Kynningaruppdrættir fyrir lóðirnar tvær sameinaðir. Þakkóti (þakhæð) leiðréttir og uppgefnir í Reykjavíkurhæðakerfi. Byggingarreitir leiðréttir miðað við tillögu sem samþykkt var í kynningu. Ítarlegri skýringarmyndir: grunnmyndir, sneiðingar, götumynd og skuggavarps greining.
    Kynningartíma lauk 12. ágúst 2022, athugasemdir bárust.
    Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var afgreiðslu frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
    Þá lögð fram umsögn Alta f.h. skipulagsdeildar dags. 1. september 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 126 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með sex atkvæðum. Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 12.21 2103900 Kópavogsbraut 71. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Sigðurðar Hallgrímssonar arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi á lóðinni nr. 71 við Kópavogsbraut. Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 29. mars 2021 var lögð fram tillaga Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi á lóðunum nr. 69 og 71 við Kópavogsbraut. Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir einni íbúð á einni hæð og kjallara að hluta til á hvorri lóð. Í breytingunni felst að íbúðum á lóðunum er fjölgað í tvær á hvorri lóð á einni hæð ásamt kjallara. Byggingarmagn á lóðunum eykst um 126 m² á hvorri lóð, úr 230 m² í 356 m². Bílastæðum fjölgar úr þremur í fjögur á hvorri lóð.
    Skipulagsráð samþykkti með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu.
    Kynningartíma lauk 14. janúar 2022. Athugasemdir og ábendingar bárust, þar á meðal ábending um ósamræmi í kynningargögnum. Það var mat skipulagsdeildar að greint ósamræmi hafi getað torveldað hagsmunaaðilum að meta umfang þeirrar breytingar sem lögð var til. Kynningargögn hafa verið leiðrétt og hefur tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðanna nú verið kynnt að nýju. Tillögunni hefur ekki verið breytt að öðru leiti.
    Eftirfarandi leiðréttingar voru gerðar á kynningargögnunum:
    Kynningaruppdrættir fyrir lóðirnar tvær sameinaðir. Þakkóti (þakhæð) leiðréttir og uppgefnir í Reykjavíkurhæðakerfi. Byggingarreitir leiðréttir miðað við tillögu sem samþykkt var í kynningu. Ítarlegri skýringarmyndir: grunnmyndir, sneiðingar, götumynd og skuggavarps greining.
    Kynningartíma lauk 12. ágúst 2022, athugasemdir bárust.
    Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var afgreiðslu frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
    Þá lögð fram umsögn Alta f.h. skipulagsdeildar dags. 1. september 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 126 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með sex atkvæðum. Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 12.22 2204613 Litlavör 19, breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju erindi Vilhjálms Hjálmarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa dags. 25. apríl 2022 sem varðar tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar. Samkvæmt gildandi deiliskiplagi er heimilt að byggja parhús á tveimur hæðum sem er 282 m² að stærð ásamt stakstæðri bílageymslu sem er 38 m² að stærð.
    Í breytingunni felst að auka byggingarmagn parhússins úr 282 m² í 328 m². Svalir á norðurhlið viðbyggingar fara út fyrir byggingarreit. Þakkantar á suður- og vesturhlið fara um 20 cm upp fyrir hámarksvegghæð á hluta þaks.
    Stærð lóðar er 950 m² og hámarks nýtingarhlutfall lóðar eykst úr 0.33 í 0.38. Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag; Kársnesbraut 76-84 og Vesturvör 7 sem samþykkt var í bæjarstjórn 23. nóvember 2010 m.s.br. að Litluvör 15-23 samþykkt í bæjarstjórn 12. febrúar 2019 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 16. apríl 2019.
    Meðfylgjandi skýringaruppdættir dags. 30. maí 2022 í mkv. 1:1000 og 1:250.
    Á fundi skipulagsráðs 30. maí 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Litluvarar 15, 17, 21 og 23.
    Kynningartíma lauk 21. júlí 2022, athugasemdir bárust.
    Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var afgreiðslu frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
    Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 3. september 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 126 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

13.2209001F - Menntaráð - 100. fundur frá 06.09.2022

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 10:22.