Slysatrygging barna í íþróttum og tómstundum
Öll börn undir 18 ára aldri sem taka þátt í skipulögðu starfi í Kópavogi eru slysatryggð hjá Sjóvá.
Ef slys ber að höndum er það tilkynnt rafrænt í gegnum heimasíðu Sjóvá.
Hvernig virkar tryggingin?
Tryggingin gildir:
- Í skipulögðu starfi, til dæmis á æfingum og viðburðum.
- Á leið til og frá starfi.
- Í ferðum innanlands á vegum félaga, til dæmis keppnisferðir.
Sjóvá greiðir einnig bætur vegna slyss sem vátryggður einstaklingur verður fyrir og gildir þá einu hvernig slysið ber að eða hver á sök á því eða hvort slysið verður við nám eða leik.
- Tryggingin greiðir bætur vegna sjúkrakostnaðar, tannbrots, varanlegrar örorku og dánarbætur.
- Vakin er athygli á að læknisfræðileg örorka er sá grundvöllur sem miðað er við þegar bætur úr slysatryggingum eru gerðar upp. Slysatryggingunni er ekki ætlað að bæta fólki tekjumissi til framtíðar og er óháð mati á því hversu mikil áhrif varanleg örorka getur haft á tekjuöflun viðkomandi.
- Um er að ræða barnatryggingu, þegar af þeirri ástæðu eru dagpeningar vegna tímabundins missis starfsorku (tímabundið tekjutjón) ekki á meðal tryggingaverndarinnar og vátryggingarfjárhæðin er lægri en ella í samanburði við fullorðna.
- Til þess að virkja tryggingaverndina er nauðsynlegt að íþróttafélögin tilkynni slys til Sjóvá innan árs frá slysi, að öðrum kosti er mál fyrnt og bótaskyldu hafnað.
Að tilkynna slys
Í skráningarferlinu um tilkynnningu slyss barna í íþróttastarfi þarf að velja:
- Hver er skráður fyrir tilkynningunni - velja ANNAR en sá sem tilkynnir.
- Hver er skráður fyrir tryggingunni - skráið kt. Kópavogsbæjar ( sjá neðst á þessari síðu).
- Hvar slysið varð - velja staðsetningu og íþróttafélag.
- Hvernig slys var þetta - haka við íþróttaslys.
Þegar hingað er komið leiðir skráningarkerfið þann sem tilkynnir að lokaskerfi skráningarferlisins.