Farsældarráð sett á laggirnar
Sá ánægjulegi áfangi náðist föstudaginn 14. nóvember að Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað. Undirskriftarviðburðurinn fór fram á aðalfu

Sá ánægjulegi áfangi náðist föstudaginn 14. nóvember að Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað . Undirskriftarviðburðurinn fór fram á aðalfundi SSH í Garðaholti í Garðabæ.
Farsældarráðið er vettvangur sameiginlegrar stefnumótunar og samráðs í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna . Stofnun ráðsins festir í sessi markvisst samtal og aukna samvinnu milli þjónustuaðila ríkis og sveitarfélaga. Markmið ráðsins er að efla og samræma þjónustu við börn á höfuðborgarsvæðinu með samþættri , snemmtækri og heildstæðri nálgun .
„ Mikilv ægum áfanga var náð í dag þegar Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var stofnað , hið fimmta á landsvísu . Farsældarráðið hjúpar helsta þéttbýliskjarna landsins og færumst við skrefi nær í að veita börnum samþætta þjónustu án hindrana um allt land,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta - og barnamálaráðherra .
Þjónustuveitendur eiga aðild að ráðinu
Aðilar að ráðinu eru sveitarfélögin sex, Reykjav ík, Kópavogur, Hafnarfjörður , Garðabær , Mosfellsbær og Seltjarnarnes. S veitarf élögin gegna lykilhlutverki í þjónustu við börn og bera ábyrgð á skólaþjónustu , leik - og frístundastarfi , félagsþjónustu og barnavernd . Auk sveitarfélaganna eiga aðild að ráðinu Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólarnir á höfuðborgarsvæðinu og íþróttahreyfingin á höfuðborgarsvæðinu.
Ráðið mun forgangsraða aðgerðum og móta fjögurra ára aðgerðaáætlun sem allir aðilar samþykkja . Aðgerðirnar byggja á samvinnu þjónustuveitenda og tengjast öllum helstu þáttum farsældar : menntun , heilsu og vellíðan , félagslegri stöðu og lífsgæðum , öryggi og vernd , þátttöku og félagslegum tengslum . Sérstök áhersla verður lögð á snemmtæka íhlutun og samfélagslegar forvarnir .
„ Þegar þjónustuaðilar vinna saman að sameiginlegum markmiðum eykst getan til að styðja börn og fjölskyldur á réttum tíma ,“ segir Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins . „ Samstarfi ð sem nú hefst byggir á traustri fagþekkingu og þeirri sannfæringu að farsæld barna sé sameiginlegt verkefni okkar allra .“
Vinna ráðsins byggir á gögnum og samráði
Ráðið mun nýta fyrirliggjandi gögn og m.a. byggja á víðtæku samráði sem þegar hefur átt sér stað . Þar má nefna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar , sem verða notaðar sem áttaviti í forgangsröðun og árangursmælingum . Þá nýtast ráðinu vel niðurstöður úr vinnustofum sem lögreglan hefur staðið fyrir í sveitarfélögunum þar sem starfsfólk lögreglu , heilsugæslu , sveitarfélaga, framhaldsskóla og íþróttafélaga hefur unnið saman að lausnum fyrir börn í viðkvæmri stöðu .
Einnig verður horft til aðgerðaáætlunar svæðisstöðvar íþróttahéraðanna á höfuðborgarsvæðinu, sem unnin var í samstarfi við öll íþróttafélög á svæðinu og miðar að því að auka íþróttaþátttöku barna og ungmenna . Þá mun ráðið nýta greiningar frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) varðandi forvarnir , geðrækt og úrræði í grunnskólum . Samvinna innleiðingastjóra farsældar á höfuðborgarsvæðinu verður jafnframt mikilvæg í vinnunni , en þau hafa greint helstu áskoranir sem tengjast samþættingu þjónustu við börn og ungmenni .
Farsældarráð í öllum landshlutum
Farsældarráðin á landinu byggja á samningi mennta - og barnamálaráðuneytisins við sjö landshlutasamtök sveitarfélaga sem undirritaður var í október 2024. Með samningnum skuldbundu öll sveitarfélög landsins sig til að hefja innleiðingu 5. greinar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna . Markmiðið er að börn og foreldrar fái þjónustu við hæfi , án hindrana og stofnun ráðanna markar mikilvægan áfanga í þeirri innleiðingu .


