Fréttir og tilkynningar

Vilt þú auðga menningarlífið í Kópavogi?
Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða sem efla menningu og mannlíf í bænum.

Fulltrúar velferðar- og mannréttindaráðs heimsóttu starfsstöðvar í Kópavogsbæ
Fulltrúar í velferðar- og mannréttindaráði Kópavogs, sem tók til starfa eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, heimsóttu nýverið fjórar starfsstöðvar á vegum bæjarins sem sinna þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk.

Opið fyrir innsendingar í Ljóðstaf Jóns úr Vör
Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar efnir til samkeppni um Ljóðstaf Jóns úr Vör. Öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik. Ljóðið má ekki hafa birst áður.

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin í Kópavogi
Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin 2026 var sett 22.september. Þetta er í fimmtánda sinn sem sýningin er í Kópavogi og stendur hún til 24.september.
Íþróttavika í Kópavogi
Kópavogsbær tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu 23.-30.september. Ókeypis á alla viðburði og öll velkomin. Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á suma viðburði.

Kópavogur þrýstir á opinbera aðila að takmarka hækkanir við 2,5%
Kópavogsbær er reiðubúinn að takmarka hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5% á árinu 2027. Þetta yrði annað árið í röð sem Kópavogsbær takmarkar gjaldskrárhækkanir sínar.

Álfhólsskóli og Snælandsskóli taka upp kennsluhætti Íslenskuskólans
Álfhólsskóli og Snælandsskóli hafa hafið innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans eftir að kennarar skólanna og ráðgjafar á menntasviði Kópavogsbæjar sóttu námskeið um aðferðir hans.

Börn og bæjarfulltrúar á kaffihúsafundi
Fulltrúar barna í grunnskólum og frístundastarfi ásamt fulltrúum ungmennaráðs Kópavogs funduðu með bæjarfulltrúum föstudaginn 11.september.

Salaskóli 25 ára
Salaskóli fagnaði 25 ára afmæli sínu föstudaginn 11.september með afmælishátíð og opnu húsi. Nemendur, foreldrar, kennarar og starfsfólk komu saman auk annarra gesta og áttu góða stund.

Traustur rekstur en verðbólgan til vandræða
Árshlutareikningur Kópavogsbæjar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 10. september.

30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans fagnað
30 ára afmæli Hótel- og veitingaskólans í MK var fagnað með opnu húsi og skemmtilegum viðburðum föstudaginn 5. september.

Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Treyjudagurinn var haldinn í fyrsta skipti á Íslandi, 4.september en hann er tileinkaður börnum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra.