Beint í efni
Til baka í yfirlit

Leitað eft­ir götu árs­ins 2026

Óskað er eftir tilnefningum íbúa til Götu ársins í Kópavogi árið 2026.

Bjarnhólastígur 2025
Bjarnhólastígur var gata ársins 2025.

Óskað er eftir tilnefningum íbúa til Götu ársins í Kópavogi árið 2026.

Veittar hafa verið viðurkenningar fyrir Götu ársins um árabil í Kópavogi. Tré er gróðursett í Götu ársins og sett upp merking þar sem fram kemur að gatan hafi hlotið nafnbótina.

Hægt er að skila inn tilnefningum til 10.júní og er það gert á vef bæjarins.

Það er Bæjarstjórn Kópavogs sem velur Götu ársins en tilkynnt verður um valið í sumarlok.

Þess má geta að í fyrra var Bjarnhólastígur valin gata ársins og var gatan sú 31. til að hljóta nafnbótina.