Beint í efni
Til baka í yfirlit

Gróð­ur­flutn­ingar úr Trað­ar­reit vestri

Gróður úr Traðarreit fær nýtt líf á opnum svæðum víðsvegar um Kópavog.

Um þessar mundir er garðyrkjudeild Kópavogsbæjar að ljúka við að flytja gróður úr Traðarreit vestri, aðallega úr Neðstutröð 4 og Vallartröð 1. Um er að ræða mikinn fjölda tegunda trjáa, runna og fjölærra plantna sem vænlegar þóttu að geta átt sér framhaldslíf á öðrum stað í Kópavogi. Hluta gróðursins hefur þegar verið komið fyrir á opnu svæði í norðausturhorni Lundarhverfis, í Kópavogsdal og í Trjásafninu í Meltungu austast í Fossvogsdal. Einnig er ætlunin að nýta stóran hluta gróðursins í gróðurbeð sem vonandi verður gert seinna á árinu við Borgarholtsbraut, á svokallaðri Menningarmiðju, vestan við bókasafnið. Um er að ræða framhald verks sem hafið var í fyrra sem miðar að því að gera þetta svæði gróðurvænna og skjólbetra. Á síðasta ári fór einmitt þangað gróður sem „flýja“ þurfti framkvæmdir í Fannborgarreit og Geislagarði.