Beint í efni
Til baka í yfirlit

Staða fram­kvæmda á Fann­borg­ar­reit og Trað­ar­reit vest­ur í mið­bæ Kópa­vogs

Uppbygging nýs miðbæjar í Kópavogi fer fram á tveimur reitum: Fannborgarreit og Traðarreit vestur.

Fannborgarreitur

Fannborgarreitur liggur milli Hamraborgar, Digranesvegar, Vallartraðar og Hálsatorgs. Verktaki þar er Mannverk.

Framkvæmdir á Fannborgarreit ganga samkvæmt áætlun. Á næstunni verður framkvæmdagirðing færð innar á svæðið til að minnka umfang þess. Jafnframt verður lokið við bílastæði og unnið áfram við flokkun og losun steypu.

Verktakinn hefur ákveðið að bíða með frekari aðgerðir þar til íbúar hafa fengið skýra kynningu á næstu skrefum. Kynningarfundur hefur þegar verið haldinn fyrir íbúa Gjábakka.

Traðarreitur vestur

Traðarreitur vestur afmarkast af Digranesi til suðurs, Neðstutröð til norðurs og vesturs og Vallartröð til austurs. Verktaki þar er Jáverk.

Á Traðarreit vestur hefur verktakinn ekki hafið framkvæmdir, niðurrif er ekki hafið enda hefur engin heimild til þeirra verið veitt. Gámar eru þó komnir á reitinn, sem eru hluti af undirbúningi og tengjast hreinsun lausra muna. Næstu skref felast í almennum undirbúningsaðgerðum, svo sem að fjarlægja gróður og númerslausa bíla, og hreinsa rusl innan úr görðum og húsunum til að tryggja öryggi og aðgengi.

Garðyrkjudeild Kópavogsbæjar hefur þegar fjarlægt gróður af lóðunum og komið honum fyrir annars staðar í samræmi við verklag bæjarins (sjá frétt dagsetta 18. maí 2026).

Einnig stendur yfir undirbúningur að lokun á köldu og heitu vatni og rafmagni í húsunum, sem er hluti af nauðsynlegu ferli áður en næstu áfangar taka við. Áætlað er að niðurrif geti hafist í júní.


Kópavogsbær mun áfram miðla skýrum og staðfestum upplýsingum um stöðu framkvæmda og upplýsa íbúa þegar breytingar verða á stöðu mála á báðum reitunum.