Beint í efni
Til baka í yfirlit

Kvenna­verk­fall 24.októ­ber

Í ár eru 50 ár liðin frá kvennaverkfalli árið 1975. Af því tilefni boða samtök kvenna, launafólks og fleiri hagsmunahópar til samstöðufunda undir yfirskrif

Boðað hefur verið til kvennaverkfalls 24.október.
Boðað hefur verið til kvennaverkfalls 24.október.

Í ár eru 50 ár liðin frá kvennaverkfalli árið 1975. Af því tilefni boða samtök kvenna, launafólks og fleiri hagsmunahópar til samstöðufunda undir yfirskriftinni kvennaverkfall, föstudaginn 24. október. Á höfuðborgarsvæðinu hefst söguganga klukkan 13.30 og fylgir fundur á Arnarhóli í kjölfarið.

Þau sem eru stjórnendur hjá Kópavogsbæ eru hvött til að skipuleggja starfsemi á vinnustöðum þann 24.október með þeim hætti að unnt sé að þær konur og kvár sem vilja taka þátt í samstöðufundum að hluta til eða í heild, geti gert það án þess að starfsemi raskist verulega eða að til lokunar komi. Telja má líklegt að einhver þjónusta skerðist.