Beint í efni
Til baka í yfirlit

Síð­asti fund­ur bæj­ar­stjórn­ar Kópa­vogs á kjör­tíma­bil­inu

Bæjarstjórn Kópavogs fundaði í síðasta skipta á kjörtímabilinu 2022 til 2026 þriðjudaginn 26.maí. Alls fundaði bæjarstjórn 82 sinnum á kjörtímabilinu frá því að fyrsti fundur var haldinn 14.júní 2022 og að þessum síðasta meðtöldum.

Bæjarstjórn Kópavogs síðasti fundur 2026
Á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Pálsdóttir, Kolbeinn Reginsson, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Bergljót Kristinsdóttir Samfylkingu, Orri Hlöðversson, Ásdís Kristjánsdóttir, Björg Baldursdóttir, Andri Steinn Hilmarsson, Elísabet Sveinsdóttir og Hjördís Ýr Johnson.

Bæjarstjórn Kópavogs fundaði í síðasta skipta á kjörtímabilinu 2022 til 2026 þriðjudaginn 26.maí. Alls fundaði bæjarstjórn 82 sinnum á kjörtímabilinu frá því að fyrsti fundur var haldinn 14.júní 2022 og að þessum síðasta meðtöldum.

Ný bæjarstjórn fundar í fyrsta sinn þann 9. júní næstkomandi.

Áður en fundur hófst stilltu bæjarfulltrúar sér upp til myndatöku. Þennan síðasta fund sátu þau Ásdís Kristjánsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Elísabet Berglind Sveinsdóttir og Andri Steinn Hilmarsson frá Sjálfstæðisflokki, Orri Vignir Hlöðverðsson og Björg Baldursdóttir frá Framsóknarflokki, Kolbeinn Reginsson frá Vinum Kópavogs, Bergljót Kristinsdóttir Samfylkingu og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Pírötum, Theodóra S. Þorsteinsdóttir Viðreisn, boðaði forföll og mætt var í hennar stað Jóhanna Pálsdóttir.

Fundargerðir bæjarstjórnar eru aðgengilegar á vef bæjarins.