Beint í efni

Virkni og vel­líð­an

Viltu efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu í góðum félagsskap?

Íþróttafélögin í Virkni og vellíðan í Kópavogi

Verkefnið Virkni og vellíðan býður eldri bæjarbúum í Kópavogi upp á fjölbreytta og heilsueflandi hreyfingu nærri heimili þeirra. Markmiðið er að efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu og stuðla að virkni og vellíðan á efri árum.

Hefðbundin starfsemi fer fram á sex stöðum í Kópavogi. Annars vegar eru æfingar í íþróttahúsunum Fífunni, Kórnum og Digranesi í samstarfi við íþróttafélög bæjarins. Hins vegar er boðið upp á æfingar í félagsmiðstöðvunum Gjábakka, Gullsmára og Boðaþingi. Á öllum stöðum eru æfingar tvisvar í viku undir leiðsögn þjálfara.

Virkni og vellíðan í Kópavogi

Nánari upplýsingar

Ef þú hefur spurningar eða vilt fá nánari upplýsingar geturðu sent skilaboð á Facebook-síðu Virkni og vellíðan. Þar geturðu einnig fylgst með starfinu og því sem er á döfinni.