Beint í efni
Til baka í yfirlit

Vill tattú­vera Kópa­vogs­kirkju við hjarta­stað

Villingurinn Ásgeir Þór Jónsson er maðurinn á bak við Mossley, einn vinsælasta veitinga- og hverfispöbb Kópavogs. Hann er nýkominn með nasasjón af bæjarpólitíkinni og gantast með að kalla sig fógetann.

Ásgeir Þór Jónsson

Geiri er maður margra hatta; hann er sælkerakokkur sem fann ástina í Danmörku, listmálari sem ætlar að hafa legsteininn sinn í garðinum, mannglöggur sálfræðingur við barborðið og Norðurlandameistari í fimleikum, sem sér eftir því að hafa lamið sig út úr Gerplu.

„Ég var Kópavogsvillingur í stórum hópi pörupilta sem gerðu ýmislegt af sér hér á Kársnesinu í gamla daga, en þó aldrei á kostnað annarra. Foreldrar mínir brýndu fyrir mér að ég mætti aldrei leggja aðra í einelti og mér kom það ekki til hugar. Við vorum aldrei vondir og tókum miklu frekar upp hanskann fyrir þá sem minna máttu sín, allan daginn og alla tíð,“ segir Ásgeir og rifjar upp tvö minnisstæð strákapör frá æskuárum sínum í Kópvogi.

„Við brutum hverja einustu rúðu í Kársnesskóla og tilkynntum það til helstu fjölmiðla til að komast í pening fyrir fréttaskotið. Í þá daga voru greiddar fimmtán þúsund krónur fyrir forsíðufrétt og við sáum það sem sniðuga gróðravon sem það var auðvitað ekki. Að dúndra þessum steinum í gluggana hefur auðvitað kostað sitt, en þetta komst ekki upp þótt það geri það greinilega núna,“ afhjúpar Ásgeir skömmustulegur.

Útsjónarsamir pörupiltarnir voru með fleiri spil uppi í erminni. Þeir vissu af tölvuglöggum strák í 9. bekk og hugsuðu sér gott til glóðarinnar.

„Eitt kvöldið bönkuðum við upp hjá tölvustráknum, buðum honum nammi og náðum að koma okkur inn í skólann eftir lokun. Með hans hjálp náðum við að breyta einkunnum okkar svo um munaði og fengum í fyrsta sinn tíu í öllu. Það komst reyndar fljótt upp því ekki var reiknað með að þessi hópur drengja fengju tíur og kennararnir vissu sem var að þeir hefðu ekki gefið okkur tíur í neinu fagi. Við þessu urðu engin viðurlög fyrir utan fundi með foreldrum okkar og skólastjóranum og einu sinni var mér vikið úr skólanum í viku. En vegna þess að maður var í grunninn góður strákur urðu foreldrar mínir aldrei reiðir. Við vorum bara uppátækjasamir gaurar að prakkarast og stóðum fast á því að vera aldrei vondir við neinn. Krakkar gátu miklu frekar treyst á okkar liðsinni en að óttast að mæta okkur úti á götu. Í hverfinu eignaðist ég æskuvini til lífstíðar og þótt kjarninn væru svo sem engir englar slæddust stundum með okkur harðari villingar sem fóru fljótlega í aðra átt í lífinu. Oft var talað um '81-árganginn sem erfiðan villingaárgang og því miður hafa nokkrir úr hópnum fallið frá.“

Stal snúðum í bakaraportinu

Ásgeir stendur vaktina á veitingastað sínum Mossley við Borgarholtsbraut flesta daga vikunnar, í húsi sem geymir ljúfar minningar frá uppvaxtarárunum.

„Þá var hér Þórsbakarí og sjoppa þar sem unglingarnir héldu til. Við arðrændum Sverri gamla bakara þegar við stálum nýbökuðum snúðum sem hann kældi í portinu á leið okkar í leikfimi. Um áramót söfnuðumst við unglingarnir svo saman í garðinum hér við húsið og drukkum landann okkar en enginn fetti fingur út í það á gamlárskvöld. Hér hefur alltaf ríkt mikill náungakærleikur, það eru allir með okkur í liði og nágrannarnir hlakka bara til þegar viðburðir standa til hér á Mossley, eins og Kársneshátíðin sem trekkir að marga í garðinn. Við látum nágrannana vita þegar blásið er til fjörs í garðinum, laumum til þeirra gjafabréfi og höfum líka smíðað girðingu hjá frábærum grönnum svo þeir fái meira næði,“ segir Ásgeir kátur.

Komin eru átta ár síðan Mossley opnaði og varð að einum vinsælasta veitinga- og hverfisbar Kópavogs.

„Mossley tengir fólk saman, til dæmis nágranna sem hafa búið lengi hlið við hlið en ekkert spjallað fyrr en þeir hittust á pöbbnum. Hér hafa myndast margir vinahópar og hingað koma fastir hópar til að fá sér bjór og vængi yfir boltaleik. Þá veit ég um allavega þrjú pör sem voru að íhuga að flytja í hverfið og skrifuðu undir kaupsamninginn hér. Þá hefur orðið vendipunktur að kíkja á Mossley, þau hafa fundið að það þarf ekki alltaf að sækja vatnið yfir lækinn og að í hverfinu er margt svo eftirsóknarvert. Hér liggur einhver fílingur í loftinu sem fólk hefur gaman að. Umhverfið er líflegt og hér verða til traust vinabönd. Gestirnir eru á öllum aldri, skólakrakkar í hádeginu og eldra fólk í fish and chips og mikið um gesti á aldrinum tvítugt til fimmtugs. Starfsfólkið vinnur hér árum saman og ég geri mitt besta til að vera góður vinnuveitandi.“

Fann stóru ástina í Köben

Ásgeir er fæddur og uppalinn í Kópavogi. Fyrstu sex árin bjó hann í Engihjalla en fluttist þaðan á Hraunbraut og síðan á Kópavogsbraut með foreldrum sínum, Jóni Rafnari Þórðarsyni og Valgerði Ágeirsdóttur og tveimur systrum. Þegar Ásgeir varð sextán ára slitnaði svo naflastrengurinn við Kópavog þegar hann flutti að heiman og hóf störf sem bakaranemi hjá Jóa Fel á Kleppsvegi.

„Einkunnir mínar eftir grunnskólann voru ekki þær bestu og sagði námsráðgjafinn að ég gæti annað hvort orðið ruslakall eða rafsuðukall. Ég valdi frekar rafsuðukallinn og steig hálfum fæti inn í Iðnskólann í Hafnarfirði til að læra málmiðnir en eftir fyrstu önnina var ljóst að ég vildi ekki meir. Ég vissi sem var að mér fannst gaman að elda og pabbi, sem var endurskoðandi fyrir Jóa Fel, kom mér á bakarasamning. Þá lagði ég hjólandi af stað frá Hraunbrautinni um tvöleytið á nóttunni sem endaði með að ég fann mér lítið herbergi til leigu og gat farið seinna af stað til að vera mættur í bakaríið klukkan fjögur á morgnana.“

Ásgeir flutti ekki aftur heim í Kópavog fyrr en 38 ára.

„Ég kynntist konu í bakaríinu sem var aðeins eldri og átti níu mánaða gamla dóttur sem ég gekk í föðurstað. Ég var því orðinn fósturpabbi sautján ára, akandi um á Yaris og hóf búskap með konunni í kjallarakompu niðri í bæ. Mér þótti rosalega vænt um barnið en svo skildu leiðir og við tók tími partílífs. Mér fannst ég vera búinn að missa svolítið af lífinu og þurfti að hlaupa af mér hornin, eins og gerist með unga menn,“ segir Ásgeir sem eftir bakaranámið hóf feril sem kokkur, meðal annars á Café Bleu, Grillhúsinu og Prikinu, eða allt þar til hann sótti um nám í grafískri hönnun við tíu skóla í tíu löndum og fékk inni í Kaupmannahöfn þaðan sem hann lauk námi.

„Námsárin í Danmörku reyndust örlagarík því þar fann ég ástina í lífi mínu. Ég fór í námið rétt fyrir hrunið 2008 og fékk ekki námslán þegar allt fuðraði upp. Ég vann því fyrir mér sem kokkur á Laundromat Café hjá Frikka Weishappel sem rak þá þrjá slíka staði í Kaupmannahöfn og voru heitustu veitingastaðirnir og barirnir fyrir djammið. Ég var aðstoðaryfirkokkur á Laundromat á Norðurbrú og hún brönskokkur á Laundromat á Austurbrú. Við unnum því ekki á sama staðnum en kynntumst á árshátíðinni og urðum fljótt mjög ástfangin. Við erum mjög líkir karakterar en á sama tíma ólík; hún er róleg, jógakennari og með tvær meistaragráður í viðskiptafræði og aðfangastjórnum og saman eigum við Óliver tólf ára, Axel sjö ára og Emilíu Rós sem er fimm að verða sex,“ segir Ásgeir um sína heittelskuðu Elvu Sif Ingólfsdóttur.

„Ég hef alltaf sagt að maður getur glaður borgað af námslánunum til eilífðarnóns, og jafnvel þótt maður vinni ekki við það sem maður lærði, því á námsárunum kynntist ég konunni minni.“

Brennandi tattúdraumur

Ásgeir og Elva bjuggu saman í fjögur ár í kóngsins Kaupmannahöfn.

„Við bjuggum á Norðurbrú sem er líflegt og litríkt hverfi þar sem gengur á ýmsu. Um tíma langaði mig að verða tattúmeistari og beint á móti Laundromat starfaði tattúmeistari sem var fastagestur hjá mér. Ég hef alltaf teiknað mikið og málað, fígúratíf málverk og landslag. Ég var því alltaf að sýna meistaranum teikningar og hann vildi endilega fá mig yfir á samning. Ég var síðan búinn að vera hjá honum í þrjár vikur þegar honum barst hótun frá eiturlyfjagengi og inn komu tveir litlir fjórtán ára gæjar sem heimtuðu að hann borgaði þeim dágóða upphæð, ellegar kveiktu þeir í kofanum. „Viltu ekki bara borga okkur?“ spurðu þeir Danann sem henti þeim út. Þeir sögðust þá vita að konan hans og barn byggju á hæðinni fyrir ofan, en allt kom fyrir ekki. Tattúmeistarinn sagði þeim að gleyma þessu og daginn eftir kveiktu þeir í húsinu. Engan sakaði, sem betur fer, en sama dag flúði Daninn til Noregs. Þeir áttu engra harma að hefna við þann danska heldur ruddust þessi gengi inn með hótanir á milli staða í hverfinu, oftar en ekki litla staði, búllur og tattústofur, og manni stóð ekki á sama,“ segir Ásgeir sem í dag segist feginn að hafa ekki haldið áfram í tattúinu.

„Það þótti töff að búa á Norðurbrú en á sama tíma var skrýtið að upplifa þetta og sjá hversu hratt glæpagengin vinna. Þarna voru sífelld læti, meðal annars var færeyskur skólabróðir minn skotinn til bana fyrir utan heimili mitt í misgripum fyrir annan. Ég hef orðið vitni að mörgu sem væri efni í bók.“

Örlagafundur á ærslabelgnum

Ásgeir og Elva fluttu alkomin til Íslands árið 2011 þar sem Ásgeir tók við stjórnartaumunum á Prikinu í Bankastræti. Metnaðurinn var mikill og alls 93 réttir á matseðlinum, en undir stjórn Ásgeirs og öflugs félaga hans ruku vinsældir Priksins upp sem veitinga- og skemmtistaður. Þremur árum síðar fæddist þeim Elvu fyrsta barnið og fannst Ásgeiri þá komið gott af því að vinna á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur.

„Ég þráði að skipta um umhverfi og langaði með fjölskylduna heim í Kársnesið. Ég átti þann fjarlæga draum að geta átt þar veitingastað og tækifærið birtist óvænt við ærslabelginn á túninu aftan við Salinn,“ segir Ásgeir sem rakst þar á gamlan vin þegar þeir voru að leik með börnum sínum.

„Hann segir mér að nokkrir vinir hafi keypt gamla bakaríshúsið á Borgarholtsbrautinni og hvort ég vilji vera með í að gera þar eitthvað skemmtilegt. Ég var hikandi; var þá með brugghús og Jamie's Italian, ítalskan fjölskyldustað á Hótel Borg, en fann að mig langaði þetta mjög, endaði með að slá til og keypti mig inn. Í fyrstu átti þetta að vera að vera pítsastaður með heimsendingu en við byrjuðum á að opna Brauðkaup sem við rákum hér fyrstu tvö árin eða þar til við breyttum því hægt og rólega í Mossley. Til liðs við okkur fengum við dásamlegar eldri konur sem höfðu unnið hér í Korninu áður og var ein þeirra, Begga, mín stoð og stytta, aldrei veik og alltaf mætt, algjör meistari. Þessir örlagaríku samfundir við ærslabelginn voru því eins og skrifaðir í skýin því annars væri ég eflaust enn að djöflast á veitingastöðum niðri í bæ í stað þess að vera hér í paradís.“

Nafnið Mossley er fengið frá tímum seinni heimstyrjaldarinnar þegar bandaríski herinn gaf Kársnesinu nafngiftina Mossley Knoll. Staðurinn opnaði í miðju Covid sem Ásgeir segir hafa verið mikla áskorun auk þess sem hann var í miðju fæðingarorlofi með nýfætt barn.

„Þetta voru undarlegir tímar. Ég opnaði jafnframt ísbúð en í samkomubanninu var lítið af fólki á ferli og sundlaugin oftar en ekki lokuð. Maður stóð þetta samt af sér og hefur gengið vel allar götur síðan. Ég afgreiddi mat og keyrði út til að halda velli, stundum alla leið til Keflavíkur. Það kostar mikla seiglu og elju að halda úti veitingastað, maður þarf að standa vaktina dag og nótt og ekkert frí þótt maður sé í úthverfi. Maður gerði allt til að lifa af.“

Ásgeir Þór Jónsson

Gleði og sorg á Mossley

Mossley á sér marga fastagesti og eru bæjarbúar duglegir að gera sér glaðan dag í mat og drykk.

„Þessi nágrannastemning er einstök og dýrmætt að geta farið á hverfisstaðinn sinn og hitt nágranna sína á öðrum nótum. Fólk kann vel að meta það. Á Mossley er til dæmis mikið um foreldrafundi þar sem foreldrar ákveða að hittast og ræða málin á þægilegum nótum. Ég vil endilega fá fleiri svona staði í hverfið. Það eykur lífsgæði fyrir alla og verður bara meira að gera. Á Kársnesinu einu búa enda fleiri en samanlagður íbúafjöldi Selfoss,“ segir Ásgeir þar sem hann stendur undir svokölluðum „wall of fame“ með myndum af fastagestum Mossley.

„Ég fer í öll hlutverk hér á Mossley, hvort sem það er í eldhúsinu eða á barnum. Að taka vaktina á barnum getur að mörgu leyti verið eins og sálfræðiþjónusta, við barborðið sest stundum einmana fólk sem hefur ekki aðra en barþjóninn til að létta á hjarta sínu. Maður verður gjarnan lífsreyndur og mannglöggur í þessu starfi og alltaf eitthvað um að fólk komi inn og tengist manni. Því miður hef ég misst bæði kunningja og vini í dauðann vegna óreglu eða vonleysis, þar af nokkuð marga í tengslum við næturlífið sem og menn sem hafa stundað Mossley. Þar af var einn sem mundi eftir okkur vinunum í denn. Við höfðum verið saman í skóla. Hann var mikið einn og átti greinilega erfitt og eitt kvöldið sá ég á honum að hann var mikið brotinn. Hann sat hjá mér til loka staðarins og ég fylgdi honum heim, þar sem ég gaf honum símanúmerið mitt og sagði honum að hika ekki við að hringja. Svo hringdi hann klukkan fjögur um morguninn en ég heyrði ekki í símanum, steinsofandi. Um morguninn var hann dáinn. Hafði tekið sitt líf. Það var sleggja að takast á við en svona er lífið. Það er brothætt og þess vegna á maður að gera vel og vera ekki fáviti. Að láta einhvern veginn gott af sér leiða,“ segir Ásgeir.

Maðurinn hafði skilið eftir sig bréf þar sem hann minntist á Ásgeir.

„Hvort ég væri til í að mæta í útför hans og vera til staðar, sem og ég vitaskuld gerði.“

Lesið í ógæfuna

Í fyrra var efri salurinn á Mossley tekinn frá tvisvar í mánuði fyrir einmana fólk í viðleitni sinni við að kynnast öðrum.

„Það var frábært framtak hjá konunni sem hélt utan um þá samfundi og gafst vel. Fólk var ekki feimið við að mæta, mestmegnis miðaldra konur og karlar, og fólk kynntist. Maður sér líka fólk eiga blind stefnumót á Mossley eða mæta hingað á Tinder-deit, sem og foreldra að taka sér frí saman og þurfa þá ekki að borga fimmtán þúsund í leigubíl heldur getur labbað heim eftir geggjaðan mat. Þetta er voða fínt og svo mikið af góðu og skemmtilegu fólki sem kemur inn,“ segir Ásgeir þakklátur.

Hann þarf stundum líka að gæta þess að ógæfan rati ekki inn á Mossley.

„Það gerist af og til að ógæfufólk ætlar að hreiðra um sig en þá bendi ég því á að Mossley sé ekki staðurinn til þess. Eftir mörg ár í bransanum verður maður naskur mannþekkjari með þaulreynd gleraugu fyrir misfögru mannlífi og þarf að vera vakandi fyrir því,“ segir Ásgeir og rifjar upp nýlegt atvik.

„Þá kom inn vel tilhöfð kona og settist við borð um hábjartan dag. Hún dró fljótlega upp steikarhníf úr dós á borðinu og stakk sig í hálsinn. Ég fékk auðvitað áfall og hún bað mig að hringja í lögregluna því hún ætlaði að kála sér, manninum sínum og börnunum. Ég tók af henni hnífinn, gaf henni Pepsí og franskar og þegar löggan kemur segir hún: „Jæja, vinan. Hvað segirðu í dag? Komdu nú með okkur niður á deild.“ Ég benti þeim réttilega á að hún ætlaði að drepa mann sinn og börn, en nei. Þá átti hún hvorki mann né börn heldur var góðkunningi lögreglunnar,“ segir Ásgeir sem er öllu vanur og vakandi fyrir því að skemmta gestum sínum.

„Í húsinu er jafnan mikið líf og allt mjög vel sótt. Nú í haust erum við að byrja með Kársnesið rokkar einn fimmtudag í mánuði. Þá koma hingað ungar hljómsveitir sem fá hvergi að troða upp og spreyta sig uppi á lofti. Við erum líka með pub quiz, uppistand og margt fleira skemmtilegt.“

Fiðrildi og fimleikakappi

Fjölskyldan unir sínum hag vel í Kársnesinu þar sem synirnir eru í Kársnesskóla og dóttirin í sama leikskóla og Ásgeir var á hennar aldri. Þá stunda öll börnin íþróttir með Breiðabliki og hefur Ásgeir verið duglegur að styrkja Breiðablik með ýmsum hætti; nokkra flokka í sundi, fótbolta og körfubolta, ásamt því að vera með tilboð þegar eru heimaleikir og auglýsa til styrktar félaginu.

„Æskuárin voru dásamleg. Þegar ég hóf skólagöngu í Kársnesskóla tók ég strax að mér hlutverk bekkjartrúðsins og var kallaður Fiðrildið af kennurum því mér var iðulega hent á milli bekkja af því ég var ofvirkur með athyglisbrest en það var kallað óþekkt í gamla daga. Ég á samt bara góðar minningar úr Kársnesskóla því þar voru aldrei nein leiðindi og kennarnir og skólastjórnarnir Guðmundur og Þórir voru mér alltaf svo góðir,“ segir Ásgeir sællar minningar.

Hann fór ungur á fótboltaæfingar hjá Breiðablik.

„Pabba dreymdi um að ég yrði fótboltamaður en fljótlega tilkynnti þjálfarinn honum að ég væri aðeins of ofvirkur fyrir fótbolta. Ég var því sendur í fimleika í Gerplu og stundaði þá stíft frá níu til fimmtán ára. Það er mín helsta Kópavogssaga,“ segir Ásgeir sem reyndist efnilegur fimleikamaður, var í landsliðinu, Norðurlandameistari og nokkrum sinnum Íslandsmeistari, þjálfaði og tók ólympísk dómararéttindi sem hann segir gaman að hafa í veskinu.

„Ég man svo vel þegar fótboltaþjálfarinn mælti með því við föður minn að ég færi í fimleika því ástandið væri ekki gott. Það urðu þó sárabætur fyrir pabba sem sá á eftir fótboltadraumnum hvað mér gekk vel sem og allir titlarnir. Í fimleikunum var mun strangari agi og tekið hart á því ef maður var óþekkur. Það átti miklu betur við mig, þetta var agi sem höfðaði til mín og ég þurfti á að halda. Ég eignaðist marga vini í Gerplu og var þar þar til gelgjan bankaði upp á. Þá var ekki eins kúl að vera í fimleikum, öfugt við í dag þegar ungir menn í fimleikum eru áberandi og að gera framúrskarandi hluti. Ég var þó alltaf með kassann úti og skammaðist mín aldrei fyrir fimleikana. Ég varð auðvitað mjög sterkur fyrir vikið, bæði andlega og líkamlega, og lifi enn á því. Þetta voru stífar fjögurra tíma æfingar sjö daga vikunnar, en þegar ég var kominn í 9. bekk var ég orðinn aðeins of mikill villingur og fannst ég farinn að missa af öllu.“

Það var þá sem kom upp atvik sem varð til þess að Ásgeir þurfti að hætta hjá Gerplu.

„Þá kom inn strákur úr öðru fimleikafélagi og var að stela úr búningsklefunum. Hann stal af mér og ég fór í hann fyrir vikið og lamdi hann, sem ég hefði ekki átt að gera og hef alltaf hugsað um síðan að var ekki rétt. Þetta var alvarlegt og haldinn var fundur og ég látinn fara. En þá var ég kominn í 10. bekk og kominn með svolítið gott af fimleikunum þótt ég hefði viljað ljúka ferlinum öðruvísi.“

Gaman að vera Geiri á Mossley

Ásgeiri þykir einkar vænt um bæinn sinn og er stoltur Kópavogsbúi.

„Ég er auðvitað bæjarfógetinn!“ segir hann hlæjandi. „Ég reyni að láta gott af mér leiða fyrir bæinn og vil veg hans sem mestan. Fyrr á árinu var ég plataður í bæjarpólitíkina og endaði í Viðreisn þótt ég væri málefnalega sammála mörgum flokkum,“ segir Ásgeir sem endaði í 9. sæti og situr nú í menningarráði og vill láta til sín taka.

„Þegar kemur að bæjarmálunum hef ég oft verið blindaður af tuðinu í öðrum. Því kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað menningar- og mannlífið í Kópavogi er gott og blómlegt. Þrátt fyrir það vil ég hafa áhrif og gera enn betur. Mér finnst mjög gaman að halda Kársneshátíðina í garðinum við Mossley. Þangað hafa þúsundir mætt og færri komist að en vildu við mikla stemningu. Ég vil standa fleiri hátíðum og finnst jákvætt að það sé komin bæjarhátíð í Kópavogi. Mig langar líka að hrinda af stað maraþoni og var tilbúinn með Guðmund Pétursson spretthlaupara til að starta því en fékk ekki úthlutun. Vegalengdin um Kársnesið er hálft maraþon og nánast heilt maraþon upp í Vatnsenda. Þetta væri tilvalið og örugglega vinsælt. Hvarvetna eru svo skemmtilegir staðir og garðar eins og Rútstún, listigarðurinn og Guðmundarlundur þar sem hægt er að halda skemmtanir og menningarviðburði með litlum tilkostnaði og sem yrði mikil lyftistöng fyrir veitingastaði og verslanir sem hala inn.“

Sjálfur á hann sér eftirlætis staði í Kópvogi.

„Auðbrekkan er mitt uppáhald og ein skemmtilegasta gatan á landinu; skrýtin og með ótal margt í gangi. Á æskuárunum varði ég miklum tíma við leik í undirgöngum Hamraborgarinnar, spreyjaði, litaði og hafði gaman, einnig á Rútstúni þar sem ég elska nú að fara með börnin mín á sleða, í sundi og kirkjuholtinu. Kópavogur er enda einn ævintýraleikvöllur.“

Fullkominn dagur Ásgeirs í Kópavogi væri með ástinni, Elvu Sif.

„Það er hægt að eiga svo frábæran dag í Kópavogi og þarf aldrei að leita langt. Við myndum byrja daginn á hádegistilboði á Mossley og tækjum svo röltið yfir í Sky Lagoon. Því næst byði ég henni í kvöldmat til Ólafs á Brasserie Kársnesi og þaðan myndum við rölta í náttúruvín hjá Braga í Krónikunni á Gerðarsafni og jafnvel kokteil í Vetrargarðinum í Smáralind og enda í bíó. Með krökkunum færum við í sund og svo Vetrargarðinn og bíó, taka röltið heim og enda í pítsu hjá Braga eða borgurum á Mossley og hjóla heim eftir æðislegan dag,“ segir Ásgeir glaður í sinni sveit.

Hann segir indælt að vera hann þótt það geti líka verið erfitt þegar tíminn er af skornum skammti.

„Já, það er gaman að vera ég. Ég er nokkuð skemmtilegur gaur og reyni að vera góður við fólkið í kringum mig. Mjög margir vorkenna konunni minni en hún er náttúrlega best í heimi, svo góð og þolinmóð. Það tekur auðvitað toll hvað ég er mikið frá heimilinu en það er allt að batna. Ég var reyndar að ræða við konuna að ég þyrfti að finna mér fleiri áhugamál en vinnuna. Mig langar í mótorhjól og fara oftar til veiða í rjúpur og gæsir. Ég hef líka gaman af blönduðum bardagaíþróttum og boxi, boxaði áður í Danmörku og hér heima, sem og að teikna, mála myndir og hanna fyrir fólk.“

Ásgeir Þór Jónsson

Missti ellefu manns á einu ári

Ásgeir skartar fjölmörgum húðflúrum en engu sem tengist Kópavogi.

„Nei, ekki enn, en Kópavogskirkja á eftir að enda mér við hjartastað sem og póstnúmerið 200,“ segir Ásgeir sem þykir vænt um gömlu fermingarkirkjuna sína.

Hann missti trúna á ákveðnum tímapunkti en tók upp þráðinn eftir áföll og mikinn missi fyrir fjórum árum.

„Það var mjög hart ár. Ég missti alls ellefu manns, ömmur og afa, frænda og vini sem mér þótti mjög vænt um og varð búinn á líkama og sál. Þá átti ég guðlega upplifun sem opnaði augu mín fyrir trúnni á ný og hafði mikil áhrif á mig. Í dag efast ég ekki um tilvist Guðs og hef átt mín móment þar sem ég hef orðið fullviss um að Guð er til,“ segir Ásgeir alvarlegur í bragði.

Hann var bestur í kristinfræði í grunnskóla og fór með bænirnar sem barn.

„Ég bið líka með börnunum mínum þegar þau biðja um það. Þau velta þessum málum mikið fyrir sér og elsti sonur minn, sem nálgast fermingaraldur, spyr reglulega hvað ég haldi. Ég segi sem er að ég sé sannfærður um að það vaki einhver yfir okkur. Trúin er til staðar og í hjörtum okkar þótt við sækjum ekki oft í kirkju en ég hef margoft leitað til Sigga prests í Kópavogskirkju og rætt við hann um allt á milli himins og jarðar. Þá var eldri strákurinn í sumarbúðum í Vatnaskógi í sumar og keypti sér Nýja testamentið sem hann les af eigin frumkvæði á hverju kvöldi. Mér finnst það mjög krúttlegt og það er margt spekúlerað,“ segir Ásgeir.

Hann segir kærleikann líka vera bestu forvörnina.

„Það hefur alltaf verið ótti hjá mér að börnin mín verði meiri vitleysingar en ég var og er eflaust ótti flestra foreldra. Maður veit hins vegar hvernig maður á að vera. Það er að sýna sínum nánustu nógu mikla ást. Það er það sem virkar og það sem ég tel mig vera að gera,“ segir Ásgeir sem á dögunum horfði á heimildarmynd um líf eftir dauðann.

„Þar voru tekin viðtöl við 700 manns sem höfðu látist en komið til baka, um þá lífsreynslu. Hver og einasti hafði sama svarið: „Við sáum mikið ljós og handan þess æðri mátt. Hans einu skilaboð voru: „Þú ert ekki tilbúinn. Farðu aftur til lífsins þar sem kærleikurinn er það eina sem skiptir máli. Að sýna ást og gefa ást.“ Því segi ég að það er eitthvað miklu meira þarna en við höldum. Lífið er svo stórkostlegt og magnað,“ segir Ásgeir sem veit upp á hár hvar hann vill hvíla beinin.

„Við lifum í hjarta Kópavogs sem heldur mjög þétt utan um okkur og förum hvergi. Hér líður mér vel, hér er góð flóra fólks og nágrannarnir eru vinir okkar, nokkuð sem ég hef ekki kynnst áður hér heima. Hér ætla ég að enda ævina. Ég fer ekki fet og hef alltaf sagt að legsteinninn verði bara í garðinum,“ segir hann léttur í lund.

Höfundur
Þórdísi Lilju Gunnarsdóttur