Skrifstofur og svið
Stjórnskipulag

Stjórnskipulag Kópavogsbæjar skiptist í þrjú svið: menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið. Þvert á þessi svið starfa skrifstofur bæjarins: skrifstofa þjónustu, skrifstofa áhættu- og fjárstýringar og skrifstofa mannauðs- og kjaramála.
Bæjarstjóri hefur umsjón með sviðunum og skrifstofunum sem og bæjarrita og skrifstofu umbóta og þróunar. Efst situr bæjarsjórn og undir henni heyrir bæjarstjóri annars vegar og bæjarráð hins vegar sem svo stjórnar innri endurskoðun.
Hvert svið hefur sett stefnu sem byggir á heildarstefnu Kópavogsbæjar og yfirmarkmiðum úr Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun..
Sviðin
Menntasvið skiptist í leikskóladeild, grunnskóladeild, íþróttadeild, frístundadeild, skrifstofu sviðsstjóra og skólahljómsveit Kópavogs.
Menntasvið annast framkvæmd menntunar í Kópavogi. Undir sviðið fellur starfsemi leik- og grunnskóla, tónlistarskóla, frístundastarf og íþróttastarf.
Hlutverk sviðsins er að vinna að menntun, velferð, forvörnum og heilbrigði barna og íbúa á ólíku aldursbili og tryggja þeim hvetjandi, skapandi og nærandi umhverfi til náms, óháð því hvort það fer fram í skóla eða í gegnum frístunda- og íþróttastarf.
Menntun í Kópavogi byggir á stefnu stjórnvalda um Menntun fyrir öll, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna í heildarstefnu Kópavogsbæjar.
Áhersla er lögð á að hlustað sé á raddir barna og ungmenna og þau hvött til áhrifa og ábyrgðar. Markvisst er unnið að því að skapa umhverfi menntunar sem gerir börnum og ungmennum kleift að rækta hæfileika sína og styrkleika, menntun sem stuðlar að andlegu, félagslegu og líkamlegu heilbrigði, og menntun sem byggir á áherslum sjálfbærrar þróunar.
Sviðsstjóri er Anna Birna Snæbjörnsdóttir.
Umhverfissvið skiptist í framkvæmdadeild, gatnadeild, skipulagsdeild, eignadeild, byggingarfulltrúa og skrifstofu sviðsstjóra.
Umhverfissvið Kópavogsbæjar sér um skipulags- og byggingarmál í Kópavogi eins og lög og reglugerðir kveða á um og samkvæmt þeim reglum sem bæjarstjórn setur. Einnig sér sviðið um framkvæmdir, viðhald mannvirkja og landsvæða bæjarins auk reksturs þeirra.
Umhverfissvið Kópavogs stefnir að því að skapa trausta ímynd og veita íbúum og hagsmunaaðilum sveitarfélagsins örugga og góða þjónustu. Áhersla er lögð á að skapa árangursríka, skilvirka og hagkvæma þjónustu og gott samstarf við önnur svið bæjarins. Leitast er við að skapa fjölskylduvænan, metnaðarfullan og skemmtilegan vinnustað.
Stefna umhverfissviðs fjallar nánar um áherslur og málaflokka.
Sviðsstjóri er Ásthildur Helgadóttir.
Velferðarsvið skiptist í skrifstofu ráðgjafar, skrifstofu félagslegs húsnæðis, skrifstofu þjónustu og sértækrar ráðgjafar, skrifstofu starfsstöðva og þróunar, skrifstofu barnaverndarþjónustu, skrifstofu rekstrar og skrifstofu sviðsstjóra.
Skrifstofur velferðarsviðs eru í Vallarkór 4, 203 Kópavogi.
Velferðarsvið Kópavogs annast framkvæmd félagslegrar þjónustu Kópavogsbæjar eins og lög og reglugerðir kveða á um og samkvæmt þeim reglum sem bæjarstjórn setur. Hlutverk sviðsins er að veita árangursríka þjónustu sem mætir fjölbreyttum þörfum einstaklinga og fjölskyldna fyrir stuðning. Leitast er við að veita framsækna þjónustu sem byggir á sérfræðiþekkingu og þverfaglegu samstarfi.
Velferðarsvið leitast við að skapa trausta ímynd og sýna hlutlægni, umhyggju og virðingu í verki gagnvart íbúum Kópavogsbæjar. Áhersla er lögð á árangursríka, skilvirka og hagkvæma þjónustu og gott samstarf við önnur svið bæjarins.
Stefnuáherslur og meginmarkmið stefnu velferðarsviðs tengjast yfirmarkmiðum Kópavogsbæjar sem fengin eru úr Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.Sviðsstjóri er Sigrún Þórarinsdóttir.
Skrifstofur
Skrifstofa áhættu- og fjárstýringar sinnir stefnumótun og greiningu á áhættu og fjárfestingum. Hún mótar áhættustefnu og tryggir virka áhættustýringu í starfsemi og rekstri bæjarins. Skrifstofan hefur umsjón með fasteignastefnu og stefnu vegna eignarhalds í félögum, annast skipulega greiningarvinnu þvert á svið og gerir fjárfestingaráætlanir.
Áhættu og fjárstýringarstjóri er Sindri Sveinsson.
Skrifstofa bæjarritara annast lögfræðiþjónustu, skjalaþjónustu og veitir stuðning við bæjarstjóra og fastanefndir bæjarins.
Pálmi Þór Másson er bæjarritari Kópavogsbæjar.
Skrifstofa mannauðs- og kjaramála annast verkefni tengd mannauðsstjórnun, kjaramálum og starfsmannastefnu bæjarins. Hún sér um launavinnslu og styður við stjórnendur og starfsfólk í mannauðsmálum.
Mannauðsstjóri er Sigríður Þrúður Stefánsdóttir.
Skrifstofa umbóta og þróunar vinnur að innleiðingu lausna sem gera starfsemi og þjónustu bæjarins skilvirkari. Hún sinnir jafnframt menningarmálum og hefur umsjón með miðlun.
Umbóta og þróunarstjóri er Védís Hervör Árnadóttir.
Skrifstofa þjónustu tekur við erindum í gegnum þjónustuver, síma og net, og veitir kerfis-, rekstrar- og notendaþjónustu. Hún sér einnig um samskipti við ytri birgja í upplýsingatæknimálum, ásamt rekstri mötuneytis, fasteignaumsjón og innkaupum.
Þjónustustjóri er Loftur Steinar Loftsson.