Sorp og endurvinnsla
Með einfaldri flokkun á heimilinu stuðlum við að bjartari og umhverfisvænni framtíð.
Sorphirðudagatal
Sorphirðudagatalið hjálpar þér að fylgjast með næstu losunardögum og skal líta á það sem viðmiðunardagatal. Verktakafyrirtækið Kubbur sinnir tæmingu fyrir Kópavogsbæ og allir úrgangsflokkar eru tæmdir á tveggja vikna fresti. Veðurfar, veikindi, bilanir og aðrir ófyrirséðir þættir geta haft áhrif en almennt ætti ekki að muna meira en hálfum til einum degi á sorphirðu milli hverfa.
Sjá nánar
Flokkun í Kópavogi
Í Kópavogi er fjórflokkun sorps við hvert íbúðarhús. Sorptunnurnar eru fyrir pappa og pappír, plast, matarleifar og blandaðan úrgang.
Sjá nánarSorphirðugjöld
Útreikningur sorphirðugjalda byggir á tveimur þáttum: samsetningu sorpíláta við fasteignina og eignarhlutfalli viðkomandi íbúðar í húsinu. Sorphirðugjöld eru innheimt með fasteignagjöldum.
Sjá nánar
Aðgengi og viðhald sorptunna
Mikilvægt er að tryggja gott aðgengi að sorptunnum svo sorphirða geti farið fram.
Sjá nánar