
Fasteignagjöld
Fasteignagjöld eru árlega lögð á allar fasteignir. Eigandi ber ábyrgð á greiðslu þeirra hverju sinni.
Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Kópavogi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð.
Á álagningarseðli má sjá sundurliðun á gjöldum sem lögð eru á fasteignirnar.
Álagning
Álagningarseðla má nálgast á Minn Kópavogur.
Álagning fasteignagjalda byggir meðal annars á:
- Fasteignamati húsa og lóða.
- Stærð og notkun.
- Lóðarhlutastærð.
Álagningarstofn kemur frá HMS og er uppfærður árlega.
Fasteignaskattur leggst á nýjar lóðir og mannvirki eftir að þau hafa verið skráð og metin í fasteignaskrá.
Fasteignaskattur er:
- 1,40% af hús- og lóðamati.
- Vatnsgjald 0,058%
- Holræsagjald 0,058%
- Lóðaleiga 185,40 kr. á fermetra.
- Aukavatnsgjald 58,28 kr. á rúmmetra.
Að öðru leyti vísast til samþykkta Bæjarstjórnar Kópavogs frá 25. nóvember 2025 og laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 ásamt síðari breytingum.
Álagning á sorphirðu- og eyðingargjaldi er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá álagningu.
Álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteignamatsnefndar og skal kæra borin fram innan þriggja mánaða frá álagningu.
- Innheimta og álagning: Fjármálasvið Kópavogsbæjar
- Eigendaskráning: Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um byggingar: HMS (í gegnum byggingarfulltrúa).
Greiðslur og afslættir
Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar.
- Gjalddagar eru tíu.
- Ekki er greitt 1. desember og 1. janúar.
- Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
- Dráttarvextir reiknast ef ekki er greitt fyrir eindaga.
- Ef heildargjöld eru lægri en 50.000 kr. er einn gjalddagi.
Veittur er 3% afsláttur ef fasteignagjöld eru greidd að fullu fyrir 17. febrúar.
Hægt er að ganga frá staðgreiðslu gjalda með því að draga 3% frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á banka: 0130-26- 74, kt. 700169-3759.
Elli- og örorkulífeyrisþegar sem búa í eigin húsnæði geta fengið afslátt
af fasteignaskatti, sem er hluti af fasteignagjöldum sveitarfélagsins.Afslátturinn miðast við tekjur samkvæmt skattframtali fyrra árs.
Ekki þarf að sækja um hann sérstaklega.
100% lækkun:
- Einstaklingar: allt að 7.440.000 kr.
- Hjón: allt að 9.506.000 kr.
75% lækkun:
- Einstaklingar: 7.440.001 – 7.563.000 kr.
- Hjón: 9.506.001 – 9.790.000 kr.
50% lækkun:
- Einstaklingar: 7.563.001 – 7.687.000 kr.
- Hjón: 9.790.001 – 10.245.000 kr.
25% lækkun:
- Einstaklingar: 7.687.001 – 7.807.000 kr.
- Hjón: 10.245.001 – 10.688.000 kr.
Félög sem starfa án hagnaðarsjónarmiða geta sótt um styrki til greiðslu fasteignaskatts, til dæmis:
- Íþróttafélög.
- Menningarfélög.
- Æskulýðs- og tómstundafélög.
- Mannúðarsamtök.
Sundurliðun fasteignagjalda
Hvað er ég að borga fyrir?
Fasteignagjöld samanstanda af mismunandi gjöldum sem tengjast fasteigninni og þjónustu sveitarfélagsins.
Allar fasteignir greiða fast gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva. Að auki er greitt tunnu- eða djúpgámagjald, eftir því hvað er til staðar við eignina.
Þegar fleiri en ein fasteign er á sömu lóð skiptist kostnaður vegna sorpíláta milli eignanna samkvæmt eignarhlutfalli. Gjöldin dreifast á allar fasteignir með sama staðfanganúmeri, óháð því hver notar hvaða tunnu eða sorpgeymslu.
Grunnskattur sem er lagður á fasteignir.
Reiknast sem hlutfall af fasteignamati eignarinnar.
Gjald fyrir aðgang að köldu neysluvatni frá sveitarfélaginu.
Reiknast oftast út frá stærð eignar eða áætlaðri notkun.
Aukavatnsgjald er greitt fyrir vatnsnotkun umfram almenna notkun.
Einnig kallað fráveitugjald.
Gjald fyrir skólpkerfi og hreinsun fráveitu.
Gjald fyrir afnot af lóð í eigu sveitarfélagsins.
Algengt í eldri hverfum og reiknast sem hlutfall af lóðarmati.
Gjaldskrá
Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Kópavogi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð.
Álagningarstofninn er fenginn frá HMS 31. desember ár hvert auk þess sem fasteignaskattur leggst á nýjar lóðir og ný mannvirki í hlutfalli við ársálagningu frá næstu mánaðarmótum eftir að þau eru skráð og metin í Fasteignaskrá.
Fasteignaskattur fellur niður næstu mánaðamót eftir að mannvirki er afskráð í HMS. Byggingarfulltrúinn í Kópavogi sendir HMS upplýsingar og gögn um nýbyggingar, viðbyggingar, eldri byggingar sem er breytt, hús sem eru rifin og aðrar viðeigandi upplýsingar. Eigendaskráning húsa og lóða er í höndum Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og er hún í samræmi við þinglýst skjöl/gögn. Allar þessar upplýsingar eru notaðar við álagningu fasteignagjalda, leiðréttingar, reikningagerð og innheimtu sem fer fram hjá fjármálasviði Kópavogsbæjar.
Fasteignagjöld | Íbúðarhúsnæði | Atvinnuhúsnæði |
|---|---|---|
Fasteignaskattur | 0,151% af hús- og lóðarmati | 1,39% af hús- og lóðamati |
Vatnsgjald | 0,055% af hús- og lóðarmati | 0,055% af hús- og lóðarmati |
Fráveitugjald/Holræsagjald | 0,056% af hús- og lóðarmati | 0,056% af hús- og lóðarmati |
Lóðaleiga | 23,62 kr. á fermetra | 185,40 kr. á fermetra |
Aukavatnsgjald | 58,28 kr. á rúmmetra | |
Lóðaleiga Lækjarbotnum | 23,62 kr. á fermetra | |
Fasteignask. Sumarhús/hesthús | 0,151% af hús- og lóðarmati | |
Rotþróargjald Vatnsenda | 37.623 kr. |
Sorphirðugjald
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á grundvelli laga nr 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, að leggja sérstakt sorphirðu- og eyðingargjald á hverja íbúð í Kópavogi á árinu 2026 samkvæmt eftrir farandi gjaldskrá.
Tegund gjaldaliðs | Tunnustærð | Upphæð | Eining |
|---|---|---|---|
Blandaður úrgangur | 240 L | 44.481 kr. | pr. tunna |
Blandaður úrgangur | 360 L | 66.722 kr. | pr. tunna |
Blandaður úrgangur | 500 L | 92.668 kr. | pr. kar |
Blandaður úrgangur | 660 L | 122.354 kr. | pr. kar |
Pappír og pappi | 240 L | 9.494 kr. | pr. tunna |
Pappír og pappi | 360 L | 14.242 kr. | pr. tunna |
Pappír og pappi | 660 L | 26.109 kr. | pr. kar |
Plast | 240 L | 7.362 kr. | pr. tunna |
Plast | 360 L | 11.043 kr. | pr. tunna |
Plast | 500 L | 15.339 kr. | pr. kar |
Plast | 660 L | 20.247 kr. | pr. kar |
Matarleifar | 140 L | 23.068 kr. | pr. tunna |
Matarleifar | 240 L | 39.546 kr. | pr. tunna |
Tvískipt tunna, almennur úrgangur/matarleifar | 144/96 L | 25.224 kr. | pr. tunna |
Tvískipt tunna, pappír/plast | 144/96 L | 25.924 kr. | pr. tunna |
Gjald fyrir flokkaðan og óflokkaðan heimilisúrgang | 43.023 kr. | á íbúð | |
Gjald vegna reksturs grenndar- | 23.796 kr. | á íbúð | |
Gjald vegna óska íbúa á breytingu | 4.644 kr. | hver breyting | |
Álag á gjöld ef tunnur eða kör eru staðsettar | 50% | pr. tunnu eða kar |
Álagning á atvinnuhúsnæði:
Fasteignaskattur er 1,40% af hús- og lóðamati, vatnsgjald 0,058% og fráveitugjald/holræsagjald 0,058%, lóðaleiga 185,40 kr. á m² og aukavatnsgjald 58,28 kr á m3.
Að öðru leyti vísast til samþykkta Bæjarstjórnar Kópavogs frá 25. nóvember 2025 og laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 ásamt síðari breytingum.
Álagning á sorphirðu- og eyðingargjaldi er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá álagningu. Álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteignamatsnefndar og skal kæra borin fram innan þriggja mánaða frá álagningu.
Félög og félagasamtök, sem eru fasteignaeigendur í Kópavogi og í húsnæðinu fer eingöngu fram starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf, eiga þess kost að sækja um styrki til greiðslu fasteignaskatts af viðkomandi fasteign.
Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 441 0000 og fyrirspurnir má senda á netfangið : thjonustuver@kopavogur.is.
100% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 7.440.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur allt að 9.506.000 krónur.
75% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu frá 7.440.001 - 7.563.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 9.506.001 – 9.790.000 krónur.
50% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 7.563.001 – 7.687.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 9.790.001 - 10.245.000 krónur.
25% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 7.687.001 – 7.807.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 10.245.001 - 10.688.000 krónur.
Gjalddagar verða 10, fyrsti gjalddagi 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar (febrúar - nóvember). Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt fyrir eindaga. Ef gjöld eru samtals lægri en kr. 50.000 er um einn gjalddaga að ræða sem er 3. mars.
Vinsamlegast athugið að ekki eru sendir út greiðsluseðlar, einungis stofnuð krafa í heimabanka. Engin breyting verður hjá þeim sem greitt hafa með boðgreiðslum eða í greiðsluþjónustu.
Ekki eru sendir út álagningarseðlar á pappír en hægt er að nálgast alla álagningarseðla á island.is.
Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur ef gjöldin í heild eru greidd til og með 17. febrúar 2026. Hægt er að ganga frá staðgreiðslu gjalda með því að draga 3% frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á banka: 0130-26-74, kt. 700169- 3759.
Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorku-lífeyrisþega, sem búa í eigin íbúð, og er hann reiknaður út frá álagningu 2025 vegna skatttekna ársins 2024, þ.e. samtalan af stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars (reitur 2.7 og 2.8) og fjármagnstekjum samtals (reitur 3.10) Ekki þarf því að sækja um hann sérstaklega.