Beint í efni

Raf­ræn­ir reikn­ingar

Kópavogsbær hefur frá 1. janúar 2021 haft þá stefnu að allir reikningar vegna kaupa bæjarins á vöru og þjónustu skulu vera með rafrænum hætti.

Pappírsreikningar verða endursendir og kallað eftir rafrænum reikningum.

  • Reikningar skulu vera á svokölluðu XML formi og miðlað í gegnum skeytamiðlara. Ekki er tekið við PDF reikningum í gegnum tölvupóst.
  • Bókhaldsdeild Kópavogsbæjar sér um að taka við reikningum á rafrænu formi fyrir hönd stofnana Kópavogsbæjar.
  • Mælt er með að söluaðilar gefi út reikninga í sínum kerfum og miðli í gegnum skeytamiðlara. Þjónustuaðilar fjárhagskerfa og skeytamiðlarar veita ráðgjöf um útgáfu og miðlun rafrænna reikninga.
  • Aðilum sem eru án bókhaldskerfis er bent á, að á markaði er allskyns bókhaldsþjónusta í boði og ýmis bókhaldskerfi á vefnum sem rekstraraðilar geta nýtt sér til að senda rafræna reikninga. Aðilar sem gefa út reikninga á pappír þurfa eftir sem áður að gefa út löglega reikninga á pappír sem síðan senda okkur í gegnum þjónustusíðu.
  • Fyrir aðila sem senda fáa reikninga eru í boði veflausnir þar sem hægt er að handskrá reikninga og senda, yfirleitt án kostnaðar fyrir lítið magn reikninga.

Kópavogsbær hefur samið við eftirfarandi skeytamiðlara um móttöku reikninga: