Beint í efni

Bæj­ar­stjóri

Ásdís Kristjánsdóttir er bæjarstjóri Kópavogs. Ásdís hóf störf sem bæjarstjóri 15. júní 2022 en ráðning hennar var samþykkt á bæjarstjórnarfundi 14. júní.

Ásdís Kristjánsdóttir
Ásdís Kristjánsdóttir

Ásdís Kristjánsdóttir er fædd í Reykjavík 28.september árið 1978. Hún er menntaður verk- og hagfræðingur. Ásdís er gift Agnari Tómasi Möller, verkfræðingi, og eiga þau þrjú börn, Tómas, Thelmu Sigríði og Kristján.

Ásdís var oddviti Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru 14. maí 2022.

Starfsferill

2020-2022 Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

2013-2020 Forstöðumaður Efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins

2011-2013 Forstöðumaður greiningardeildar Arion banka

2005-2011 Efnahagsgreinandi í greiningardeild Arion banka

2005 Sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu

2002-2004 Viðskiptastjóri hjá Lánstrausti

Annað

2020-2021 Starfshópur um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnamálum

2018-2020 Stjórn Arctic Adventure ehf.

Frá 2018 Aðalstjórn HK

2017-2018 Verkefnastjórn um endurskoðun peningastefnunnar

Frá 2017 Stjórn félags viðskipta- og hagfræðinga

Frá 2014 Stjórn fulltrúaráðs Verslunarskóla Íslands

2013 Samráðsvettvangur um aukna hagsæld

Við­tals­tími bæj­ar­stjóra

Bæjarstjóri Kópavogsbæjar er með viðtalstíma annan hvern miðvikudag frá 09.00 -11.00.

Hér er hægt að bóka viðtalstíma með bæjarstjóra. Viðtalstímar fara fram á bæjarskrifstofu að Digranesvegi 1

Bóka viðtal

Mál­efna­samn­ing­ur 2026-2030

Málefnasamningur meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var kynntur 6. júní 2026.

Áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks byggir á sameiginlegri sýn um að Kópavogur verði áfram farsælt sveitarfélag í fremstu röð, þar sem lífsgæði íbúa eru ávallt höfð að leiðarljósi.

Meirihlutasáttmálinn byggir á sjö megináherslum sem fela í sér um fimmtíu og fimm verkefni sem verða sett í forgang á kjörtímabilinu.

  1. Ábyrgur rekstur er grunnur velferðar
  2. Grunnur að bjartri framtíð
  3. Fallegur bæjarbragur
  4. Örugg leið heim
  5. Meiri lífsgæði og betri lýðheilsa
  6. Lífsgæði sem við ræktum
  7. Saman erum við Kópavogur