Beint í efni

Barna­sátt­mál­inn í Kópa­vogi

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 22. maí 2018 að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og komast þannig í alþjóðlegan hóp barnvænna sveitarfélaga. Stýrihópur, með þátttöku barna og ungmenna, vinnur að innleiðingunni, þar sem lögð er áhersla á að vinna með grunnstoðir Barnasáttmálans.

Grunnstoðirnar eru: 2. greinin sem fjallar um jafnræði og enga mismunun, 3. greinin sem fjallar um að við gerum ávallt það sem barni fyrir bestu, 6. greinin sem fjallar um rétt barns til að lifa og þroskast, 12. greinin sem fjallar um rétt barns til að tjá sig.

Kópavogur hefur hlotið viðurkenningu UNICEF sem barnvænt sveitarfélag.

Þann 27. maí 2021 fékk Kópavogsbær afhenta viðurkenningu í tilefni þess að bærinn hefur innleitt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kópavogsbær er þar með kominn í í alþjóðlegan hóp barnvænna sveitarfélaga og var eingöngu annað sveitarfélagið á Íslandi til að komast í þann hóp.

Viðurkenningin kom í kjölfar þriggja ára umfangsmikillar vinnu, en þann 22. maí 2018 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Vinnan fólst í 18 aðgerðum, þar sem stýrihópur, með þátttöku barna og ungmenna, vann að innleiðingunni, þar sem lögð var áhersla á að vinna með grunnstoðir Barnasáttmálans. Grunnstoðirnar eru: 2. greinin sem fjallar um jafnræði og enga mismunun, 3. greinin sem fjallar um að við gerum ávallt það sem barni fyrir bestu, 6. greinin sem fjallar um rétt barns til að lifa og þroskast, 12. greinin sem fjallar um rétt barns til að tjá sig. Aðgerðaráætlunin var kynnt á samráðsgátt og opið var fyrir athugasemdir íbúa haustið 2019. Þá var hún send til kynningar og umsagnar hjá nefndum og ráðum bæjarins. Í framhaldinu fóru allar aðgerðirnar í ítarlegri vinnu meðal sérfræðinga úr starfsliði Kópavogsbæjar sem sá um innleiðingarferlið í þverfaglegri samvinnu.

Logo

Hér er að finna logo fyrir Barnvænt sveitarfélag Kópavogur - UNICEF