Gæðastefna Kópavogsbæjar
Í gæðastefnu Kópavogsbæjar hefur bæjarstjórn sett fram stefnu sem hæfir tilgangi og samhengi þess umhverfis sem bæjarfélagið starfar í, styður við og endurspeglar strategísk áform þess.
Gæðastefnan er rýnd og samþykkt árlega af bæjarstjórn og er um leið undirstaðan fyrir gæðakerfi Kópavogsbæjar.
Með öflugu stjórnunarkerfi gæða vill Kópavogsbær vera í fararbroddi í þjónustu við íbúa bæjarins og aðra þá sem þurfa að nýta þjónustu hans. Með stjórnunarkerfi gæða vill Kópavogsbær einnig koma á gegnsæi í stjórnsýslu sem tryggir öllum sama rétt til þjónustu og að viðskiptavinir með sömu þarfir fái sömu afgreiðslu. Kópavogsbær vill einnig styðja við starfsmenn bæjarins með góðri starfsaðstöðu, skýrum verklagsreglum, góðum tækjabúnaði og öflugri símenntun.