Loftlagsstefna innri reksturs Kópavogsbæjar
Kópavogsbær ætlar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna reksturs sveitarfélagsins, halda öðrum neikvæðum umhverfisáhrifum í lágmarki og taka virkan þátt í baráttunni við loftslagsbreytingar.
Stefnan tekur til allrar innri starfsemi Kópavogsbæjar, starfsstöðva, framkvæmda, innkaupa sem og starfsmanna. Loftlagsstefna innri reksturs Kópavogsbæjar tekur mið af hlutverki, framtíðarsýn og gildum bæjarins og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Stefnan byggist á skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart Parísarsamningnum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og markmiðum stjórnvalda um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040.