Mannauðsstefna
Mannauðsstefnan styður við framfylgd Stefnu Kópavogsbæjar sem samanstendur af hlutverki, framtíðarsýn, gildum og yfirmarkmiðum úr Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Þá hefur mannauðsstefnan gildi Kópavogsbæjar að leiðarljósi og styður við markvissa notkun þeirra og innleiðingu á starfsstöðum Kópavogsbæjar.
Mannauðsstefnan var unnin af mannauðsstjóra og mannauðsteymi Kópavogsbæjar. Stefnan byggir á áherslum sem fram komu á stjórnendadegi ársins 2022 þar sem stjórnendur settu fram sín sjónarmið og vinnustofum með starfsfólki sem fram fóru í lok árs 2022 og í byrjun ársins 2023.
Stefnan var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 9. janúar 2024.