Beint í efni

Mennta­stefna

Menntastefnan er sameiginleg sýn um framtíðaráherslur í menntun og frístundastarfi í Kópavogi.

Henni er ætlað að draga fram þá hæfni sem börn og íbúar á ólíkum aldurstigum geta öðlast í gegnum jafnt formlegt sem óformlegt nám.

Undir sviðið fellur starfsemi leik- og grunnskóla, tónlistarskóla, frístundastarf og íþróttastarf. Hlutverk sviðsins er að vinna að menntun, velferð, forvörnum og heilbrigði barna og íbúa á ólíku aldursbili og tryggja þeim hvetjandi, skapandi og nærandi umhverfi til náms, óháð því hvort það fer fram í skóla eða í gegnum frístunda- og íþróttastarf.

Stefnan byggir á fimm stefnuáherslum: Námsumhverfi sem tekur mið af getu hvers og eins, stuðlar að framförum, vellíðan og skilningi á samfélagi og umhverfi, snemmtækur stuðningur, forvarnir og fræðsla fyrir börn og foreldra, samráð, samvinna, starfsþróun og starfsaðstaða, menntun með áherslu á gleði, leik og sköpun, frístundir og íþróttir fyrir alla íbúa.

M.1

Námsumhverfi sem tekur mið af getu hvers og eins, stuðlar að framförum, vellíðan og skilningi á samfélagi og umhverfi

Allt námsumhverfi kallar á að við mótun þess og framkvæmd sé tekið mið af styrkleikum, getu og hæfni hvers og eins og að virðing sé borin fyrir fjölbreytileika barna hvað varðar félagslegan og menningarlegan bakgrunn. Í Kópavogi eiga börn að hafa aðgengi í nærumhverfi að námi og stuðningi sem mætir þeim á eigin forsendum, ýtir undir sjálfstæða hugsun og stuðlar um leið að ábyrgri þátttöku í eigin námi. Menntun felur í sér nám í leik- og grunnskóla, frístundastarfi og íþróttastarfi. Lögð er áhersla á heildstæða nálgun í námi barns með samfelldu og virku samstarfi allra sem sinna menntun í bæjarfélaginu og þjónustu við börn og fjölskyldur. Hagsmunir barns og þarfir þess eru ávallt í forgrunni í því skyni að stuðla að sjálfseflingu, félagslegri hæfni, trú á eigin getu og sterkri sjálfsmynd. Mótun hæfni til ákvarðanatöku, árangursríkra samskipta og menningarlæsis, stuðlar að aukinni virðingu og umburðarlyndi, sjálfstrausti og leggur grunn að sameiginlegum skilningi í fjölmenningarlegu samfélagi og ýtir undir vellíðan og góðan námsárangur. Hnattrænar áskoranir eins og loftslagsmál og sjálfbærni eru samofnar áskorunum í nærsamfélagi.

M.1 Námsumhverfi

M.2

Snemmtækur stuðningur, forvarnir og fræðsla fyrir börn og foreldra

Í Kópavogi er lögð áhersla á snemmtækan stuðning, forvarnir og markvissa fræðslu í allri þjónustu við börn og fjölskyldur. Þjónustan er skipulögð þannig að hún mæti einstaklingsbundnum þörfum notenda á heildstæðan og skilvirkan hátt. Fyrirbyggjandi forvarnaraðgerðir og snemmtækur stuðningur við börn og fræðsla til foreldra byggja á rýningu gagna, tölfræðilegum upplýsingum og viðurkenndum aðferðum. Starfsfólk bregst við ef upplýsingar gefa til kynna að grípa þurfi inn í aðstæður hjá einstaklingum eða hópum. Þar sem við á er þjónusta samþætt milli mennta- og velferðarsviðs.

M.2 Snemmtækur stuðningur,

M.3

Samráð, samvinna, starfsþróun og starfsaðstaða

Uppeldi, menntun og mótun hæfni er sameiginlegt verkefni samfélags. Foreldrar eru fyrstu fyrirmyndir barna og með sameiginlegum stuðningi við menntun þeirra náum við þeim árangri sem að er stefnt. Samstarf þarf að byggja á gagnkvæmri virðingu og trausti. Starfsfólk menntasviðs skapar traust með reglubundnu og markvissu samtali og stuðningi við notendur þjónustu sviðsins og virku samráði við hagsmunahópa. Kópavogur leggur mikinn metnað í að bjóða upp á faglegt og fjölbreytt nám í leik- og grunnskólum, tónlistarskóla, frístundum og íþróttum. Við menntun í Kópavogi starfar faglegt og framsýnt starfsfólk sem vinnur saman sem ein heild að því að tryggja gott og árangursríkt starf. Aðstaða fyrir menntun mætir sömuleiðis ólíkum þörfum og ýtir undir vellíðan þeirra sem nýta hana og starfsfólks.

M.3 Samráð

M.4

Menntun með áherslu á gleði, leik og sköpun

Í Kópavogi eru leikur, sköpun og gleði ríkir þættir í allri menntun, óháð því hvar nám fer fram. Þjálfun hæfni til að nýta skapandi hugsun til að takast á við álitamál og ágreiningsefni sem snúa að samspili umhverfis, félagslegra þátta og efnahags í þróun samfélags ásamt getu til að bregðast við nýrri tækni og áhrifum á umhverfi er mikilvæg. Sköpunarkrafturinn er virkjaður með frumkvöðlastarfi og nýsköpunar- og vísindaverkefnum í leik- og grunnskóla, og í frístundum og íþróttum. Nálgunin kallar á fjölbreytta kennsluhætti, samþættingu námsgreina, ígrundun eigin starfshátta og prófun nýjunga. Einnig er mikilvægt að leggja aukna áherslu á sjálfbærni- og umhverfismennt og virka ábyrgð nemenda á eigin námi. Nálgunin kallar á aðgengi að sveigjanlegri aðstöðu til náms og nútíma tæknibúnaði til að kenna ábyrga umgengni við tækni og þannig efla börn og ungmenni sem stafræna borgara framtíðarinnar.

M.4 Menntun

M.5

Frístundir og íþróttir fyrir alla íbúa

Kópavogur leggur sig fram um að skapa aðstæður og umhverfi sem styður við öflugt nám í gegnum frístundir og íþróttastarf fyrir íbúa á öllum aldursstigum, hvetur til aukinnar hreyfingar og útivistar og stuðlar þannig að góðri andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu. Í þessu felst uppbygging mannvirkja og aðstöðu sem mætir þörfum iðkenda og starfsfólks, gott aðgengi að aðstöðunni og reglubundið eftirlit og viðhald. Aðgengi að fjölbreyttu frístunda- og íþróttastarfi er einnig tryggt með frístundastyrkjum til barna og ungmenna og uppbyggingu aðstöðu og stuðningsþjónustu fyrir ungt fólk 16-25 ára. Fjölbreytt frístunda- og íþróttastarf stuðlar að félagsmótun og þátttakendur öðlast hæfni til að eiga góð samskipti við aðra, setja sig í spor annarra, sýna virðingu og öðlast vilja til að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt og samfélag.

M.5 Frístundir