Öryggisstefna
Kópavogsbær hefur sett sér það markmið að vera slysalaus vinnustaður.
Til að svo megi verða þarf að efla öryggisvitund starfsmanna og stuðla að öflugri öryggismenningu.
Kópavogsbær leggur áherslu á að öryggi starfsmanna, nemenda og annarra þjónustuþega sé í fyrirrúmi og að leita allra leiða til að efla öryggi.
Forvarnir og góð vinnubrögð skapa öruggara umhverfi sem fyrirbyggi óhöpp og slys. Í öryggisstefnu bæjarins felst meðal annars að á öllum vinnustöðum verði til staðar virkar öryggisnefndir og starfsmenn bæjarins vinni eftir samþykkt um öryggismál.
Fyrirspurnir og ábendingar sem varða öryggismál má senda á netfangið oryggi@kopavogur.is.