Beint í efni

Siða­reglur bæj­ar­full­trúa

Kópavogsbær var fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að setja sér siðareglur árið 2009 en þær voru endurskoðaðar og samþykktar einróma árið 2025.

Markmið regnanna er eins og fram kemur í fyrstu grein þeirra að „skilgreina það hátterni sem ætlast er til að kjörnir fulltrúar sýni af sér við störf sín fyrir hönd Kópavogsbæjar og upplýsa íbúa um þær kröfur sem gerðar eru til þeirra.“

Með kjörnum fulltrúum er átt við bæjarfulltrúa og aðra sem kjörnir eru til setu í nefndum og ráðum Kópavogsbæjar.

Forsætisnefnd sker úr hvort reglurnar hafa verið brotnar og tekur mál til umfjöllunar að eigin frumkvæði eða á grundvelli skriflegrar rökstuddrar ábendingar. Nefndin getur lagt til að forseti bæjarstjórnar ávíti viðkomandi vegna brotsins ef nefndin telur að um brot sé að ræða. Siðareglur bæjarfulltrúa í Kópavogi voru samþykktar í bæjarstjórn 28. janúar 2025 á 1313.fundi bæjarstjórnar. Fyrst voru settar siðareglur árið 2009.

Siðareglur bæjarfulltrúa

  • Við störfum í þágu allra Kópavogsbúa með opnu samtali, virku upplýsingaflæði og hlustum á ólík sjónarmið. Farsæld íbúanna og komandi kynslóða er okkar hjartans mál.
  • Við stöndum vörð um fjárhag bæjarins og förum vel með eigur hans enda er traustur rekstur undirstaða farsældar og vaxtar.
  • Við störfum af heilindum og ábyrgð, sýnum háttvísi og berum virðingu fyrir skoðunum annarra.
  • Það á að vera gott að vinna hjá Kópavogsbæ og í því augnamiði virðum við hlutverk og störf starfsfólks, sýnum kurteisi og tillitssemi í samskiptum.
  • Við nýtum ekki stöðu okkar, upplýsingar né þiggjum gjafir í starfi ef það er í þágu eigin hagsmuna eða hagsmuna tengdra aðila.
  • Við gerum grein fyrir hagsmunum eða tengslum, leiki vafi á hæfi okkar í meðferð mála.
  • Við kynnum okkur málin, komum undirbúin til starfa, segjum satt og rétt frá, gætum trúnaðar og sýnum sanngirni í hvívetna.