Beint í efni

Stefna um gervi­greind

Bæjarstjórn Kópavogs setti sér stefnu um ábyrga og siðferðislega notkun gervigreindar í allri starfsemi Kópavogsbæjar þann 11. febrúar 2025.

Markmiðið er að auka skilvirkni, efla stafræna þjónustu og tryggja gagnsæi í samræmi við lög um persónuvernd og alþjóðlegar leiðbeiningar.

Stefna um gervigreind tekur mið af Stefnu Kópavogsbæjar sem samanstendur af hlutverki, framtíðarsýn, gildum og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, og hefur til hliðsjónar aðrar stefnur bæjarins. Gildin eru virðing, heiðarleiki, framsækni og umhyggja. Stefnan styður við stefnu bæjarins hvað varðar sjálfbærni auk þess að vera í fararbroddi í nýsköpun og tileinka sér tækninýjungar í starfsemi sinni

Stefnan tekur til allrar starfsemi, upplýsingakerfa og gagna Kópavogsbæjar. Stefnan samanstendur af tveimur stefnuáherslum og meginmarkmiðum þeirra. Samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 11.02.2025.