Beint í efni

Vafra­köku­stefna

Þessi vefur notar vafrakökur (e. cookies) til að tryggja notendum sem bestu upplifun af vefnum. Vafrakökur eru skrár sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir vefinn og geymir upplýsingar um heimsóknina.

Vafrakökur eru meðal annars notaðar til að koma til móts við þarfir fólks sem á erfitt með að lesa af skjá.

Þegar þú heimsækir vef Kópavogsbæjar getur þú valið hvort þú samþykkir greiningarkökur. Þú getur breytt eða afturkallað samþykki þitt hvenær sem er í vafrakökustillingum vefsins.

Vefurinn notar bæði nauðsynlegar vafrakökur sem tryggja virkni hans og greiningarkökur sem nýtast við þróun og umbætur á þjónustunni.

Kópavogsbær notar Siteimprove til vefmælinga. Þegar vefur Kópavogsbæjar er notaður verða til upplýsingar um heimsóknina. Þær upplýsingar eru einungis notaðar til þess að bæta þjónustu við notendur. Upplýsingarnar varða:

  • Umferð notenda á vef Kópavogsbæjar
  • Hvaða upplýsingum leitað er að
  • Hvaða síður eru mest heimsóttar
  • Úr hvers konar miðlum vefurinn er heimsóttur
  • Frá hvaða vef er komið
  • Gerð vafra og stýrikerfis

Ekki er gerð til tilraun til að afla persónugreinanlegra upplýsinga né upplýsinga í markaðslegum tilgangi.

Hýsingar- og rekstrarumhverfi vefsins notar nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja öryggi, virkni og eðlilega starfsemi vefsins.

Kópavogsbær notar einnig Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu, allar upplýsingar eru ópersónugreinanlegar og tímabundnar.

Það er stefna Kópavogsbæjar að nota vafrakökur sparlega og upplýsingum er ekki miðlað til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila. Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga má finna í persónuverndarsamþykkt Kópavogsbæjar.

Vafrakökustefna - Kópavogsbær