Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 407. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
  • Jens Karl Bernharðsson - starfsmaður tæknisviðs
  • Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Sigurgeir Sveinsson
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Guðrún Hauksdóttir

Dagskrá fundar

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

01

Austurkór 56 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Thelma Guðmundsdóttir, Austurkór 56, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að breyta kaldri geymslu í smáhýsi að Austurkór 56.

Teikning: Þorvarður Lárus Björgvinsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 29. nóvember 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

02

Hlíðarvegur 24 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Ásta Sóllilja Þorsteinsdóttir, Lautavegur 44, Reykjavík sækir um leyfi fyrir að gera breytingar á innra skipulagi í íbúð 0101 að Hlíðarvegi 24.

Teikning: Sigurður Hafsteinsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 29. nóvember 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

03

Hrauntunga 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lúðvík Þór Vignisson, Urriðaholtsstræti 36, Garðabæ sækir um leyfi fyrir að gera breytingar á skráningartöflu að Hrauntungu 17.

Teikning: Gunnlaugur Johnsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 29. nóvember 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

04

Huldubraut 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Hilmar Ásgeirsson, Huldubraut 25, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að byggja sólstofu og klæða hús að utan að Huldubraut 25.

Teikning: Vígfús Halldórsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 29. nóvember 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

05

Smiðjuvegur 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Íspan Glerborg ehf., Smiðjuvegur 7, Kópavogi sækir um leyfi fyrir breyta staðsetningu reyklosunarblásara og garðveggjum að Smiðjuvegi 7.

Teikning: Friðrik ´Ólafsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 29. nóvember 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

06

Urðarhvarf 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Elliðaárdalur ehf., Lágmúla 7, Reykjavík sækir um leyfi fyrir að skipta upp rými 0105 í tvo geymslurými, setja upp stálhurðir og gögnuhurðir að Urðarhvarfi 8.

Teikning: Björgvin Halldórsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 29. nóvember 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010.