Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 443. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
- Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Þórunn Vilmarsdóttir
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
- Gylfi Ástbjartsson
Ritari
- Guðrún Hauksdóttir
Dagskrá fundar
Sótt er um leyfi fyrir svalalokunum á fyrstu til níundu hæð fjölbýlishússins, á lóð Álalindar 14.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa 27. apríl 2026.
Sótt er um leyfi til að breyta geymslum í kjallara og eignarhlutum breytt í fjölbýlishúsi, á lóð Ásakórs 10-14.
Skilyrt er að nýrri eignaskiptayfirlýsingu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að lagfæra rýmisnúmer fjölbýlishúss, á lóð Grenigrundar 8.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að breyta atvinnurými 03-0101 í sólbaðsstofu, á lóð Hamraborgar 16.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og brunahólfun jarðhæðar atvinnuhúss, á lóð Hlíðasmára 5-7.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að framlengja valmaþak yfir bílskúr og bílskúrsveggir hækkaðir upp í nýtt þak, á lóð Kastalagerðis 4.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Sótt er um leyfi til að stækka bílageymslu til suðurs og vesturs um 24 m2 og setja stoðvegg á lóðamörkum syðst á lóðinni, að Löngubrekku 35.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Málið var grenndarkynnt frá 12. mars - 12. apríl 2026 og engar athugasemdir bárust.
Sótt er um áframhaldandi stöðuleyfi til eins árs fyrir tvö fullbyggð sýningarhús fyrir Byko. Annars vegar 42 m2 hús nr. 1 og hins vegar 15 m2 hús nr. 2. Húsin verða staðsett 19,7 m frá austurhlið verslunarinnar. Húsin munu standa á forsteyptum dregurum sem þau er boltuð við, á lóð Skemmuvegar 2.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi rýmis 0102, aðkomu og inngangssvæði. Húsið verður klætt að utan með lituðum álplötum á álburðarkerfi. Inngangur verður hækkaður og klæddur að utan með timburrimlum, á lóð Skógarlindar 2.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að byggja tvær viðbyggingar, samtals 1423 m2 austan- og vestanverðu við núverandi atvinnuhúsnæði, á lóð Smiðjuvegi 7.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að byggja 27 m2 útbyggingu á norðurhlið, breyta innra skipulagi, stærð á millipalli og gluggasetningum í útveggjum, á lóð Smiðjuvegar 11.
Vísað til skipulagsfulltrúa með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús með fjórum íbúðum. Samtals 580 m2, á lóð Stöðvarhvarfs 4.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús með fjórum íbúðum. Samtals 580 m2, á lóð Stöðvarhvarfs 6.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús með fjórum íbúðum. Samtals 580 m2, á lóð Stöðvarhvarfs 8.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að breyta 29 m2 ósamþykktu bátaskýli í íbúðarrými sem er tengt núverandi húsi, ekki er verið að byggja við húsið, á lóð Sunnubrautar 29.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi á rými 0402 á léttum veggjum og innréttingum atvinnuhúsnæðis, á lóð Urðarhvarfs 8.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að opna milli hæða og gera breytingar á innra skipulagi tvílyfts einbýlishúss ásamt reyndarteikningum af útisvæði, á lóð Þrymsala 10.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að fá samþykktar reyndarteikningar fyrir einbýlishús, á lóð Aflakórs 2.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að grera breytingar á innra skipulagi íbúðar 0202 í fjölbýlishúsi, á lóð Ásbrautar 19-21.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum samtals 246 m2, á lóð Hlíðarhvarfs 3.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum, samtals 297 m2, á lóð Hlíðarhvarfs 19.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að fá samþykktar reyndarteikningar vegna lokaúttektar á atvinnuhúsnæði, á lóð Hlíðasmára 1.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að breyta svalahandriði á fjölbýlishúsi úr steypu í gler, á lóð Furugrundar 50.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum, samtals 292 m2, á lóð Hæðarhvarfs 16.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að setja kvist á norðurhlið þaks yfir bílskúr, á lóð Múlalindar 3.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að byggja þriðju hæð ofan á hús nr. 9, alls 279 m2, á lóð Nónsmára 9-15.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að fá samþykktar reyndarteikningar atvinnuhúsnæði, á lóð Silfursmára 12.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að byggja 314 m2 vöruskemmu ásamt girðingu við lóðarmörk, á lóð Skemmuvegar 48-50.
Frestað, vísað til athugasemda