Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 446. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
  • Gylfi Ástbjartsson - verkefnastjóri
  • Óskar Torfi Þorvaldsson - verkefnastjóri
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur
  • Kristjana H Kristjánsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Guðrún Hauksdóttir

Dagskrá fundar

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

01

Álftröð 1-7, Skólatröð 2-8 og Hávegur 2-4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir 13m2 svalalokun á hluta af þaksvölum íbúðar með rýmisnúmerið 0504 í fjölbýlishúsi, á lóð Álftraðar 7.

Vísað til skipulagsfulltrúa til umsagnar.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

02

Dalvegur 30 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingu á innra skipulagi, koma fyrir verslun og líkamsrækt á jarðhæð og lagfæringar vegna lokaúttektar, á lóð Dalvegar 30A.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

03

Digranesheiði 31 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir áðurgerðum framkvæmdum sem felast í að byggja 17m2 viðbyggingu ofan á staðsteyptan bílskúr þar sem svalir eru nú samþykktar, breytingu á innra skipulagi á efri hæð, og breyta bílskúr í geymslu og vinnustofu í tvíbýlishúsi, á lóð Digranesheiðar 31.

Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltúa dags. 11. maí 2026.

Vísað til skipulagsfulltrúa til umsagnar eða ákvörðun um grenndarkynningu

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

04

Fannborg 4, umsókn um byggingarleyfi (niðurrif).

Sótt er um leyfi til að ljúka niðurrifi á 513m2 skrifstofubyggingu á tveimur hæðum og kjallara, það er að segja rif á húsinu undir efri brún plötu yfir bílstæðahúsi á lóð Fannborgar 4.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

05

Fannborg 6, umsókn um byggingarleyfi (niðurrif)

Sótt er um leyfi til að ljúka niðurrifi á 1515m2 skrifstofubyggingu á þremur hæðum og kjallara, það er að segja rif á húsinu undir efri brún plötu yfir bílstæðahúsi á lóð Fannborgar 6.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

06

Grenigrund 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingu á skráningartöflu og uppfæra rýmisnúmer fjölbýlishúss, á lóð Grenigrundar 8.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

07

Hamraendi 14-20 14R - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 42m2 viðbyggingu vestan við núverandi hesthús með rýmisnúmerið 0103, á lóð Hamraenda 14-20.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

08

Hæðarhvarf 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja parhús, á lóð Hæðarhvarfs 13.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

09

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hæðarhvarf 15 - Byggingaráform og byggingarleyfi umfangsflokkur 2

Sótt er um leyfi til að byggja parhús, á lóð Hæðarhvarfs 15.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

10

Hæðarhvarf 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 297m2 einbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 16.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

11

Kópavogsbraut 105 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 55m2 bílageymslu og 31m2 svalir norðvestanmegin við núverandi hús ásamt leyfi fyrir áður gerðum minniháttar breytingum á einbýlishúsi, á lóð Kópavogsbrautar 105.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

12

Nýbýlavegur 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að breyta fjórum 52m2 íbúðum á 3. hæð í gistiheimili í flokki II í atvinnu- og fjölbýlishúsi, á lóð Nýbýlavegar 32.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

13

Skjólbraut 5, umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að hækka þak hússins um 1,0 metra og setja kvisti á þakið, einn kvist að norðanverðu og annan að sunnanverðu á einbýlishúsi, á lóð Skjólbrautar 5.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

14

Dalsmári 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir veitingastað í flokki II í íþróttahúsi, á lóð Dalsmára 13.

Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

15

Hallahvarf 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 246m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hallahvarfs 10.

Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

16

Hallahvarf 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 246m2 parhús á tveimur hæðum,á lóð Hallahvarfs 12.

Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

17

Hraunbraut 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 108m2 viðbyggingu á tveimur hæðum með bílskúr á 1. hæð og stofu þar ofan á, á lóð Hraunbrautar 9.

Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

18

Hæðarhvarf 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 233m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 1.

Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

19

Hæðarhvarf 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 233m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 3.

Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

20

Urðarhvarf 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 7671m2 atvinnuhúsnæði á 6. hæðum ásamt 2ja hæða kjallara, á lóð Urðarhvarfs 10.

Frestað, vísað til athugasemda