Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 439. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
- Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Þórunn Vilmarsdóttir
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Guðrún Hauksdóttir
Dagskrá fundar
Sótt er um leyfi fyrir svalalokunum á fyrstu til níundu hæð fjölbýlishúsins, á lóð Álalindar 14.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Sótt er um leyfi til að byggja 17m2 viðbyggingu ofan á staðsteyptan bílskúr þar sem svalir eru nú samþykktar, breytingu á innra skipulagi á efri hæð, og breyta bílskúr í studió íbúð, á lóð Digranesheiðar 31.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Sótt er um leyfi fyrir niðurrifi á 513m2 skrifstofubyggingu á tveimur hæðum á lóð Fannborgar 4.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Óheimilt er að rífa hús neðar en að efri brún plötu yfir bílastæðahúsi.
Sótt er um leyfi fyrir niðurrifi á 515m² skrifstofubyggingu á þremur hæðum, á lóð Fannborgar 6.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Óheimilt er að rífa hús neðar en að efri brún plötu yfir bílastæðahúsi.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á gluggum og innihurðum fjölbýlishúss, á lóð Hafnarbrautar 10.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi á rýmum U315 og U316 og sameina í eitt 199m2 rými, á lóð Hagasmára 1.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á brunavörnum veitingastaðar á 1. hæð og kjallara, á lóð Hamraborgar 11.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að byggja 246m2 einbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 4.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að uppfæra málsetningar á teikningum fyrir dreifistöð, á lóð Kambavegar 1.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi íbúðar og sameignar, fjarlægja burðarveggi, á lóð Reynihvamms 27.
Samþykki meðeiganda liggur fyrir og teikning burðarþolshönnuðar.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Áskilið er að gera þarf nýja eignaskiptayfirlýsingu.
Sótt er um leyfi til að uppfæra málsetningar á teikningum fyrir dreifistöð, á lóð Roðahvarfs 23.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að hækka þak hússins og setja kvisti á þakið, einn kvist að norðanverðu og annan að sunnanverðu, á lóð Skjólbrautar 5.
Vísað til skipulagsfulltrúa með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi á léttum innveggjum og innréttingum 10, 11 og 18 hæð, á lóð Smáratorgs 3.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að byggja 580m2 fjórbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Stöðvahvarfs.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi í rými 0303 á léttum innveggjum og innréttingum, á lóð Urðarhvarfs 8.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og bæta tveimur gluggum á vesturhlið, á lóð Skemmuvegar 4A.
Frestað, vísað til athugasemda.