Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 362. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
  • Jens Karl Bernharðsson - starfsmaður tæknisviðs
  • Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsstjóri
  • Þórólfur Óskarsson - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Guðrún Hauksdóttir

Dagskrá fundar

01

Furugrund 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Kópavogsbær, Digranesvegur 1, Kópavogi, sækir um leyfi til að breyta atvinnuhúsi í leikskóla að Furugrund 3.

Teikning: Sigríður Ólafsdóttir.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 10. febrúar 2023. Samrýmist lögum nr. 160/2010

02

Grenigrund 18 - Tilkynnt framkvæmd

Þórey Dagmar Möller, Grenigrund 18, Kópavogi, tilkynnir um breytingu á burðarvirki innanhús að Greingrund 18.

Teikning: Benedikt Skarphéðinsson.

03

Hamraborg 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Dýralæknaþjónusta Kópavogs ehf., Hamraborg 10, Kópavogi, sækir um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi í rými 0102 að Hamraborg 10.

Teikning: Kristján Ásgeirsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 10. febrúar 2023. Samrýmist lögum nr. 160/2010

04

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Kársnesbraut 108

Kraflar fasteignir ehf., Laxatunga 47, Mosfellsbær, sækir um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi, útliti og byggingarlýsingu að Kársnesbraut 108.

Teikning: Lárus Ragnarsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 10. febrúar 2023. Samrýmist lögum nr. 160/2010

05

Skólagerði 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bára Hólmgeirsdóttir, Skólagerði 17, Kópavogi, sækir um leyfi til að byggja vinnustofu að Skólagerði 17..

Teikning: Oddur Kristján Finnbjarnarson.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 10. febrúar 2023 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

06

Sunnusmári 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

ÞG smári ehf., Lágmúla 7, Reykjavík, sækir um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og skráningartöflu að Sunnusmára 9-13.

Teikning: Björn Guðbrandsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 10. febrúar 2023. Samrýmist lögum nr. 160/2010

07

Þorrasalir 4, byggingarleyfi.

Agnieska Barbara Jakubek, Þorrasalir 4, Kópavogi, sækir um leyfi til að gera breytingar á svalaskýli að Þorrasölum 4.

Teikning: Þorgeir Þorgeirsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 10. febrúar 2023. Samrýmist lögum nr. 160/2010