Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 440. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Þórunn Vilmarsdóttir
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Valdimar Gunnarsson

Dagskrá fundar

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

01

Fjallalind 108 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 42m2 bílskýli suðaustan við núverandi bílskúr og taka í notkun 37m2 áður óútgrafið rými kjallara, ásamt því að stækka lóð um 7m2 til suðausturs, á lóð Fjallalindar 108.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

02

Hæðarhvarf 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 250m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 18.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

03

Hæðarhvarf 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 250m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 20.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

04

Urðarhvarf 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi á rými 0202 á léttum innveggjum og innréttingum, á skrifstofuhúsnæði á lóð Urðarhvarfs 8.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

05

Ögurhvarf 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi á rými á 1. hæð, sem áður hýsti afgreiðslu og hluta leikfimisalar og koma fyrir hárgreiðslustofu og þreksal, á lóð Ögurhvarfs 1.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

06

Hlíðarhvarf 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 246m2 einbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Hlíðarhvarfs 3.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

07

Hlíðarhvarf 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 244m2 parhús á tveimur hæðum, samtals 488m2, á lóðum Hlíðarhvarfs 6-8

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

08

Holtagerði 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka núverandi sólstofu ofan á bílskúr tvíbýlishúss, ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa sem styðja munu undir nýjar svalir efrihæðar, á lóð Holtagterðis 4.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

09

Skógarlind 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi á rými 0102. Breytingar taka til innra fyrirkomulags verslunarinnar, þar með talið svæða sem ætluð eru til vinnslu matvæla. Einnig eru fyrirhugaðar breytingar á aðkomu og inngangssvæði. Húsið verður klætt að utan með lituðum álplötum á álburðarkerfi. Inngangur verður hækkaður og klæddur að utan með timburrimlum, á lóð Skógarlindar 2.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

10

Sólarhvarf 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 291m2 einbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Sólarhvarfs 15.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

11

Sunnubraut 29 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á þegar byggðu einbýlis húsi. Breytingarnar ná til burðarvirkist ytrabirgðis og innraskipulags. Einnig bætast við fermertar í skráningu þar sem hækka á lofhæð í þegarbyggðu rými ( bátaskýli) sem áður var ósamþykkt rými. Ekki er verið að byggja við húsið, á lóð Sunnubraut 29.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

12

Urðarhvarf 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á brunahönnun og koma fyrir sorpgeymslum, á lóð Urðarhvarfs 4.

Frestað, vísað til athugasemda.