Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 355. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
  • Smári Magnús Smárason - skipulagssvið
  • Jens Karl Bernharðsson - starfsmaður tæknisviðs
  • Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Þórólfur Óskarsson - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Guðrún Hauksdóttir

Dagskrá fundar

01

Álfhólsvegur 29 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Álfhólsvegur 29 ehf., Melhaga 22, Reykjavík, sækir um leyfi til að byggja fjölbýlishús að Álfhólsvegir 29.

Teikning: Sigurður Hafsteinsson.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 28. október 2022 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

02

Dalvegur 10-14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Klettás Fasteignir ehf., Dalvegur 10-14, Kópavogi, sækir um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi í rými 0201 og 0301 að Dalvegi 10-14.

Teikning: Árný Þórarinsdóttir.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 28. október 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010

03

Hlíðarhvammur 4, byggingarleyfi.

Þóra Birna Björnsdóttir, Hlíðarhvammur 4, Kópavogi, sækir um leyfi til að gera breytingar á skráningartöflu að Hlíðarhvammi 4.

Teikning: Börkur Þór Ottósson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 28. október 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010

04

Hlíðarvegur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Fagsmíði ehf., Hlíðarhjalli 43, Kópavogi, sækir um leyfi til að byggja fjölbýlishús í stað einbýlis að Hlíðarvegi 15.

Teikning: Andri G. L. Andrésson.

Byggingarfulltrúi hafnar erindinu með tilvísun í afgreiðslu skipulagsráðs 3. október 2022 og bæjarstjórn dags. 11. október 2022 með tilvísun í 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010

05

Melgerði 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Elsa Rut Sigurðardóttir, Melgerði 21, Kópavogi, sækir um leyfi til að staðsetja svalir austar á suðurhlið að Melgerði 21.

Teikning: Ivar Hauksson.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 28. október 2022 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

06

Turnahvarf 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Opus fasteignafélag ehf., Katrínartún 2, Reykjavík, sækir um leyfi til að gera breytingar á gluggum að Turnahvarfi 6.

Teikning: Stinmar H. Rögnvaldsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 28. október 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010