Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 418. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
  • Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Sigurgeir Sveinsson
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Guðrún Hauksdóttir

Dagskrá fundar

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

01

Álfhólsvegur 111 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sigurlaug Kristín Pálsdóttir, sækir um leyfi fyrir að stækka glugga á norðurhlið íbúðar 0201 að Álfhólsvegi 111.

Teikning: María Guðmundsdóttir.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

02

Dalvegur 10-14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Klettás fasteignir ehf., sækir um leyfi fyrir að færa sorpgeymslu í bílakjallara og setja hleðslustöðvar fyrir rafhjól að Dalvegi 10-14.

Teikning: Mardís Malla Andersen.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

03

Fróðaþing 27, byggingarleyfi

Ágúst Scheving Jónsson, sækir um leyfi fyrir garðveggjum að Fróðaþingi 27.

Teikning: Sveinn Ívarsson.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

04

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Grundarhvarf 10 a-b

Árni Jóhannes Valsson, sækir um leyfi fyrir að fá samþykktar reyndarteikningar að Grundarhvarfi 10A og 10B.

Teikning: Þorgeir Þorgeirsson.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

05

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Lundur 22

Ásgeir Ásgeirsson, sækir um leyfi fyrir glerskála á vestursvalir íbúðar 0301 að Lundi 22.

Teikning: Guðmundur Gunnlaugsson.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis og að henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

06

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Skjólbraut 10

Kristín Þorleifsdóttir, sækir um leyfi fyrir breytingum á burðarvirki að Skjólbraut 10.

Teikning: Hjörleifur Sigurþórsson.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

07

Urðarhvarf 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Elliðaárdalur ehf., sækir um leyfi fyrir að gera breytingar á innra skipulagi að Urðarhvarfi 8.

Teikning: Björgvin Halldórsson.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

08

Umsókn um stöðuleyfi

Kópavogsbær, sækir um stöðuleyfi fyrir gám að Kópvogsbraut 19.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.