Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 442. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
- Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
- Þórunn Vilmarsdóttir
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
- Gylfi Ástbjartsson
- Freyr Snorrason
Ritari
- Guðrún Hauksdóttir
Dagskrá fundar
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi 2. og 3. hæðar. Á 2. hæð er verslun breytt í skrifstofur og starfsmannaaðstöður, á 3 hæð eru breytingar á léttum veggjum í norðurhluta atvinnuhúsnæðis, á lóð Bæjarlindar 12.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltúa dags. 24. mars 2026.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að leiðrétta skráningu á eignarhaldi á loftræstiklefa, á lóð Hlíðasmára 19.
Skilyrt er að uppfærð eignaskiptayfirlýsing vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17m2 í 26m2 ofan á bílskúr tvíbýlishúss, ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa sem styðja munu undir nýjar svalir efrihæðar, á lóð Holtagerðis 4.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Sótt er um að innrétta tvö hjónaherbergi, alls fjögur rými, þar sem áður voru geymslur á jarðhæð deildarinnar Álfhóls . Samhliða þessu er sótt um að grafa frá norðurhlið álmunnar og saga fyrir nýjum gluggum, á lóð Kópavogsbrautar 1C.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að byggja yfir verönd framan við forstofu, taka niður burðavegg í eldhúsi og stofu, á lóð Melgerðs 14.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Sótt er um leyfi til að byggja 67m2 bílskúr norðaustan megin við hlið núverandi íbúðarhús, á lóð Vatnsendabletts 4.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Sótt er um leyfi til að fá samþykktar reyndarteikningar, gluggum og hurð breytt, á lóð Aflakórs 2.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og skráningartöflu, jógastudio innréttað í rými 0102, á lóð Bæjarlindar 12.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að gera breytingu á staðsetningu spennustöðvar innan byggigarreits, á lóð Dalvegs 30C.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að opna á milli rýma 0103 og 0104 og breyta innra skipulagi veitingastaðar, á lóð Engihjalla 8.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að byggja 55m2 bilageymslu og 31m2 svalir norðvestanmegin á núverandi húsi ásamt leyfi fyrir áðurgerðum minniháttar breytingum, á lóð Kópavogsbrautar 105.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að byggja 3ja hæða fjölbýlishús ásamt kjallara, samtals 31 íbúð, á lóð Roðahvarfs 10.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og bæta við tveimur gluggum á vesturhlið húss oh innra skipulagi breytt, á lóð Skemmuvegar 4A.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að byggja 27m2 útbyggingu á norðurhlið, breyta innra skipulagi, stærð á millipalli og gluggasetningum í útveggjum, á lóð Smiðjuvegar 11.
Frestað, vísað til athugasemda
Sótt er um leyfi til að gera breytingar á þegar byggðu einbýlis húsi. Breytingarnar ná til burðarvirkis ytrabirgðis og innraskipulags. Einnig bætast við fermertar í skráningu þar sem hækka á lofhæð í þegarbyggðu rými ( bátaskýli) sem áður var ósamþykkt rými. Ekki er verið að byggja við húsið, á lóð Sunnubrautar 29.
Frestað, vísað til athugasemda