Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 385. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
- Jens Karl Bernharðsson - starfsmaður tæknisviðs
- Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsstjóri
- Þórólfur Óskarsson - starfsmaður nefndar
Ritari
- Guðrún Hauksdóttir
Dagskrá fundar
Eignarhaldsfélagið Normi ehf., Auðbrekka 6, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að gera gistiheimili á 2 og 3 hæð að Auðbrekku 10.
Teikning: Jakob Emil Líndal.
Byggingarfulltrúi hafnaði erindinu með tilvísun í afgreiðslu skipulagsráðs 14. desember 2023 og bæjarstjórn dags. 9. janúar 2024 með tilvísun í 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010
Indro Indriði Candi, Álfhólsvegur 62, Kópavogi sækir um leyfi til að byggja annað íbúðarhús að Álfhólsvegi 62..
Teikning: Indro Indriði Candi.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 26. janúar 2024 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Nauthóll ehf., Dalbrekka 14, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að byggja sólstofu að Grænatúni 20B.
Teikning: Einar V. Tryggvason.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 26. janúar 2024 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Kópavogsbær, Digranesvegur 1, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að gera breytingar á innra skipulagi og byggingarlýingu að Kleifakór 2.
Teikning: Anna Margrét Hauksdóttir.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 26. janúar 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010
Sjónver ehf., Síðumúli 29, Reykjavík sækir um leyfi fyrir að gera sólbaðsstofu að Nýbýlavegi 16.
Teikning: Guðni Pálsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 26. janúar 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010
Ispan Glerborg ehf., Smiðjuvegi 7, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að gera geymslurými í kjallara að Smiðjuvegi 7.
Teikning: Friðrik Ólafsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 26. janúar 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010
Ari Þórðarson, Hlíðarhvammur 10, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að gera breytingar á innra skipulagi að Vesturvör 11.
Teikning: Arnar Þór Jónsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 26. janúar 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010