Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 437. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
  • Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Þórunn Vilmarsdóttir
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Guðrún Hauksdóttir

Dagskrá fundar

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

01

Auðbrekka 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að breyta 2. hæð í tvær 72 og 73m2 íbúðir og 3. hæð í eina 145m2 íbúð. Setja stálstiga á suðurhlið og stál svalir á norðurhlið og klæða húsið að utan með álklæðningu, á lóð Auðbrekku 32.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

02

Borgarholtsbraut 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að lyfta lofti íbúðar efri hæðar að hluta til upp í þakvirki og setja tvo þakglugga á þakið, á lóð Borgarholtsbrautar 25.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

03

Digranesvegur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að lagfæra á skráningartöflu á færanlegum kennslustofum, á lóð Digranesvegar 15.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

04

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Fossahvarf 7

Sótt er um leyfi til að byggja 27m2 viðbyggingu ofaná svalir milli húsa, á lóð Fossahvarfs 7.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

05

Hagasmári 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofur ásamt fundarherbergi á 3. hæð, í vestur enda hússins í rými nr. 3515, á lóð Hagasmára 1.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

06

Langabrekka 33 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að rífa núverandi 32m2 bílgeymslu og byggja í stað hennar 57m2 bílageymslu á lóðamörkum við Löngubrekku 31. Jafnframt er sótt um leyfi til að byggja stoðvegg á lóðamörk við Álfhólsveg 37 og Löngubrekku 35, á lóðinni Löngubrekku 33.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

07

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Laufbrekka 3

Sótt er um leyfi til að byggja 11m2 geymslu undir úti stigapalli að norðanverðu, á lóð Laufbrekku 3.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

08

Marbakkabraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 143m2 einbýlishús á einni hæð sunnan við núverandi hús, á lóð Marbakkabrautar 38.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

09

Nýbýlavegur 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 8m2 viðbyggingu á norðurhlið fyrir lyftu á milli 1. og 2. hæðar, á lóð Nýbýlavegar 6.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

10

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Skjólbraut 5

Sótt er um leyfi til að hækka þak hússins og setja kvisti á þakið, einn kvist að norðanverðu og annan að sunnanverðu, á lóð Skjólbrautar 5.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

11

Skyggnishvarf 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir 8m2 dreifistöð, á lóð Skyggnishvarfs 25.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

12

Smáratorg 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir 25m2 LED auglýsingaskjá með birtuskynjara á norðurgafli á 2. hæð, á lóð Smáratorgs 3.

Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltúa dags. 30. janúar 2026.

Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa 30. jánúar 2026.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

13

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Urðarhvarf 16

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á brunahönnun hússins og eldhúsi á 1. hæð, á lóð Urðarhvarfs 16.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

14

Akrakór 5B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi 1. hæðar, á lóð Akrakórs 5B.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

15

Birkihvammur 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi íbúðar á 3ju hæð, á lóð Birkihvamms 9.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

16

Hæðarhvarf 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja tvö 250m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 18-20

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

17

Nýbýlavegur 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að breyta notkun 3ju hæðar í gistiheimili, á lóð Nýbýlavegar 32.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

18

Stöðvarhvarf 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 579m2 fjórbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Stöðvarhvarfs 2.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

19

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Víðigrund 23

Sótt er um leyfi til að lagfæra skráningartöflu, á lóð Víðigrundar 23.

Frestað, vísað til athugasemda.