Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 347. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Smári Magnús Smárason - skipulagssvið
- Jens Karl Bernharðsson - starfsmaður tæknisviðs
- Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsstjóri
- Þórólfur Óskarsson - starfsmaður nefndar
Ritari
- Sigurbjartur Halldórsson
Dagskrá fundar
Trausti Þór Friðriksson, Skólagerði 46, sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu-sólskála 29,1 m2 að stærð með einhalla þaki.
Teikning: Ivar Hauksson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 22. júní 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010.
Landakot fasteignafélag, sækir um breytingu á gluggafronti móti suðaustri í rými 0101 á Hæðasmára 4.
Teikning: Kristján Ásgeirsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 22. júní 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010.
ÞG Smári ehf, sækir um breytingu á þegar samþykktri framkvæmd við Sunnusmára 1-17. Um er að ræða breytingar á fyrirkomulagi á geymslum í kjallara og uppfærslur á skráningartöflum.
Teikning: Björn Guðbrandsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 22. júní 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010.
Naustavör 11, sækir er um leyfi fyrir svalaskýlum úr gleri á svalir og þaksvalir, létt þak yfir þar sem þarf, úr sama efni.
Teikning: Guðmundur Gunnlaugsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 22. júní 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010.
Sigurður Guðmundsson, sækir um leyfi fyrir breytingum á palli/tröppum við aðalinngang og skráningartafla endurnýjuð og leiðrétt.
Teikning: Helgi Hafliðason
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 22. júní 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010.
Ester Halldórsdóttir sækir um breytingu á grunnhæð. Nýjar reyndarteikningar vegna lokaúttektar.
Teikning: Kristinn Ragnarsson
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 22. júní 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010.