Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 297. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
- Bjarni Rúnar Þórðarson - embættismaður
- Auður Dagný Kristinsdóttir - arkitekt
Ritari
- Guðrún Hauksdóttir
Dagskrá fundar
Ása Brynjólfsdóttir og Willum Þór Þórsson, Bakkasmári 1, Kópavogi, sækir um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og útliti að Bakkasmári 1
Teikning: Einar V. Tryggvason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 12. ágúst 2020. Samrýmist lögum nr. 160/2010
Kolbeinn Hrafnkelsson, Lækjarbergi 33, Hafnarfirði, sækir um leyfi til að byggja kvist og svalir, breytingar á innra skipulagi og útliti að Kársnesbraut 17.
Teikning: Steinunn Guðmundsdóttir.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 12. ágúst 2020 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
365 ehf., Laugavegi 1B, Reykjavík, sækir um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi að Urðarhvarfi 14.
Teikning: Jón H. Hlöðversson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 12. ágúst 2020. Samrýmist lögum nr. 160/2010