Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 438. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðrún Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
  • Sigurbjartur Halldórsson - aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Guðrún Hauksdóttir

Stefán Þór Steindórsson tók einnig sæti á fundinum.

Dagskrá fundar

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

01

Brattatunga 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 40m2 vinnustofu/tómstundahús á suðurenda lóðar, á lóð Bröttutungu 6.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

02

Dalvegur 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að breyta lögun bílakjallara, fækka lyftum úr þremur í tvær, setja djúpgáma og hjólageymslu á lóð og fl., að lóð Dalvegar 32C.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Áréttað er kvöð í deiliskipulagi um að ekki megi raska núverandi gróðri á lóðamörkum.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

03

Háalind 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að lagfæra skráningartöflu, á lóð Háulindar 15.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

04

Hlíðarhvarf 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 297m2 einbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Hlíðarhvarfs 17.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði vð lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

05

Hlíðarvegur 62 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir 8m2 svalalokun á suðaustur hlið jarðhæðar, á lóð Hlíðarvegs 62.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

06

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hraunbraut 8

Sótt er um leyfi til að byggja 19m2 geymsluskúr á lóðinni, norðan við núverandi hús, á lóð Hraunbrautar 8.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/201

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

07

Kópavogsbraut 1A,B,C - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að breikka austur væng hússins til vesturs og breyta innra skipulagi og fjölga hjúkrunarrýmum, á lóð Kópavogsbrautar 1C.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/201

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

08

Nýbýlavegur 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að breyta fjórum íbúðum á 3. hæð í gistiheimili í flokki II, á lóð Nýbýlavegar 32.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

09

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Víðigrund 23

Sótt er um leyfi til að lagfæra skráningartöflu, á lóð Víðigrundar 23.

Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/201

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

10

Austurkór 96 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja tvo sólskála á vesturhlið í eignarhlutum 0101 og 0102, á lóð Austurkórs 96.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

11

Bæjarlind 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi 2. og 3 hæðar. Á 2. hæð er verslun breytt í skrifstofur og starfsmannaaðstöður, á lóð Bæjarlindar 12.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

12

Hagasmári 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að bæta við hurð í kjallara milli rýma 001 og 007, á lóð Hagasmára 3.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

13

Hamraborg 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á brunavörum veitingastaðar á 1. hæð og kjallara, á lóð Hamraborgar 11.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

14

Smáratorg 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingu á innra skipulagi á léttum veggjum og innréttingum á 10, 11 og 18 hæð, á lóð Smáratorgs 3.

Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

15

Urðarhvarf 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingu á innra skipulagi rýmis 0303, á lóð Urðarhvarfs 8.

Frestað, vísað til athugasemda.