Til baka í nefndaryfirlit
Atvinnu- og þróunarráð - 7. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigurjón Jónsson - aðalfulltrúi
- Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
- Sigurður Björnsson - starfsmaður nefndar
- Lárus Axel Sigurjónsson - varafulltrúi
Ritari
- Sigurður Björnsson
Dagskrá fundar
Fyrir liggur bréf bæjarstjóra til fyrirtækja og stofnana í Kópavogi varðandi samstarf í atvinnumálum.
Ráðið ræddi bréfið. Minniháttar breyting gerð, en bréfið samþykkt samhljóða.Ráðið óskar eftir því að á fjárhagsáætlun næsta árs verði gert ráð fyrir 7 milljóna króna fjárveitingu til verkefnisins.
Fyrir liggja sundurliðaðar upplýsingar um atvinnuleysi í Kópavogi í september 2012
Ráðið lýsir ánægju sinni með þá miklu minnkun atvinnuleysis sem orðið hefur í Kópavogi á síðustu 12 mánuðum. Áhyggjuefni er þó að sambærileg minnkun hefur ekki orðið meðal erlendra ríkisborgara. Ráðið óskar eftir því að aflað verði upplýsinga frá VMST um ráðstafanir sem gerðar hafa verið vegna þessa hóps.