Atvinnu- og þróunarráð - 6. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sigurður Björnsson - starfsmaður nefndar
- Viggó Einar Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigurjón Jónsson - aðalfulltrúi
- Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
- Ýr Gunnlaugsdóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Sigurður Björnsson
Dagskrá fundar
Frá bæjarritara, dags. 20/9, afrit af umsögn til bæjarstjóra varðandi fjármögnun tillögu atvinnu- og þróunarráðs um samstarfsvettvang fyrirtækja og stofnana, þar sem fram kemur að fjármagn til framkvæmdarinnar rúmast vel innan gildandi fjárhagsáætlunar.
Samþykkt að boða forsvarsmenn fyrirtækja til kynningarfundar um samstarfsvettvang fyrirtækja og stofnana fimmtudaginn 1. nóvember n.k. kl. 12.00Fyrirtækjum verður boðið bréflega til fundarins af bæjarstjóra fyrir 19. október.Borist hefur tilkynning frá EBÍ um fjögur hundruð þúsund króna styrk til verkefnisins og kann ráðið EBÍ bestu þakkir fyrir.
Frá bæjarstjóra, svör við spurningum frá menningar- og þróunarráði um átakshóp um atvinnumál, lögð fram á fundi bæjarráðs 20/9.
Svar bæjarstjóra lagt fram fyrir nefndina.Ráðið þakkar svörin og óskar jafnframt eftir nánari upplýsingum um árangur af starfsemi Atvinnutorgs og Vinnandi vegs sem nefnd eru í svarinu.