Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Atvinnu- og upplýsinganefnd - 325. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Ritari

  • Sigurður Björnsson

Dagskrá fundar

01

Kynning á hlutverki Atvinnu- og upplýsinganefndar

<DIV&gt;Skrifstofustjóri fór yfir hlutverk nefndarinnar, sýndi stöðu hennar í skipuriti bæjarins og kynnti drög að samþykktum fyrir nefndina. Nefndin ákvað að fjalla um samþykktirnar síðar.</DIV&gt;

02

Atvinnufulltrúi, samstarf við Vinnumálastofnun

<DIV&gt;Undir þessum lið sátu fundinn Gerða Björg Hafsteinsdóttir og Þorsteinn Ingimarsson atvinnufulltrúar fundinn. Kynntur var samningur Kópavogsbæjar og VMST um staðbundna atvinnumiðstöð Í Kópavogi og atvinnufulltrúarnir greindu frá störfum sínum í atvinnumiðstöðinni.</DIV&gt;

03

Samningur um markaðssamstarf, viðburði og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu

<DIV&gt;Undir þessum lið sat fundinn Linda Udengaard, deildarstjóri menningardeildar, en hún er fulltrúi Kópavogsbæjar í stjórn Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins. Samstarf í ferðamálum á höfuðborgarsvæðinu byggir á samstarfssamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 2005 og vinna deildarstjóri menningardeildar og skrifstofustjóri stjórnsýslusviðs saman að fullnustu þess samnings, aðallega með kynningu menningarstofnana, íþótta- og útivistarmöguleika og verslunar og þjónustu í Kópavogi.</DIV&gt;

04

Upplýsingatæknimál

<DIV&gt;<DIV&gt;Undir þessum lið sátu fundinn Sæmundur Valdimarsson, deildar stjóri UT deildar, og Bent Marinósson, vefstjóri. Þeir greindu frá undirbúningi við endurgerð upplýsingavefs bæjarins og fjölluðu um upplýsingatæknimál almennt.</DIV&gt;</DIV&gt;

05

Sjávarútvegssýningin 2011

<DIV&gt;Fyrir liggja drög að samningi milli Kópavogsbæjar og Merkatomedia um að halda Íslensku sjávarútvegssýninguna í Fífunni og Smáranum 22. - 24. september 2011.</DIV&gt;<DIV&gt;Nefndin mælir með því við bæjarráð að samningurinn verði staðfestur.</DIV&gt;

06

Önnur mál

<DIV&gt;Nefndin óskar eftir því við deildarstjóra UT deildar að gerð verði úttekt á möguleikum þess að taka í notkun opin hugbúnað hjá Kópavogsbæ. Sérstaklega verði skoðað hvort ná megi fram sparnaði í rekstri hugbúnaðarkerfa í skólum og leikskólum og hvor ná megi fram sparnaði með opnum hugbúnaði á skrifstofum bæjarins (ritvinnslu, töflureiknum o.þ.h.)</DIV&gt;