Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Samningur um markaðssamstarf, viðburði og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu

Málsnúmer: 1007119

Ferill máls

01

Atvinnu- og upplýsinganefnd - 326. fundur

<DIV&gt;Fram lagður til kynningar samningur um markaðssamstarf. Skrifstofustjóri sagði frá verkefnum sem unnið hefur verið að á grundvelli samningsins en Höfuðborgarstofa hefur haft ábyrgð á framkvæmd hans. Kópavogsbær hefur aðstöðu á Höfuborgarstofu, sem er annar fjölsóttasti viðkomustaður ferðamanna í landinu, og hefur Kópavogsbær einkum kynnt lista- og menningarstofnanir bæjarins, sundstaði og útivistarsvæði.</DIV&gt;

02

Atvinnu- og upplýsinganefnd - 325. fundur

<DIV&gt;Undir þessum lið sat fundinn Linda Udengaard, deildarstjóri menningardeildar, en hún er fulltrúi Kópavogsbæjar í stjórn Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins. Samstarf í ferðamálum á höfuðborgarsvæðinu byggir á samstarfssamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 2005 og vinna deildarstjóri menningardeildar og skrifstofustjóri stjórnsýslusviðs saman að fullnustu þess samnings, aðallega með kynningu menningarstofnana, íþótta- og útivistarmöguleika og verslunar og þjónustu í Kópavogi.</DIV&gt;