Atvinnu- og upplýsinganefnd - 326. fundur
í Siglingaklúbbnum Ými Vesturvör
Mætt til fundar
Ritari
- Sigurður Björnsson
Dagskrá fundar
01
Samningur um markaðssamstarf, viðburði og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
<DIV>Fram lagður til kynningar samningur um markaðssamstarf. Skrifstofustjóri sagði frá verkefnum sem unnið hefur verið að á grundvelli samningsins en Höfuðborgarstofa hefur haft ábyrgð á framkvæmd hans. Kópavogsbær hefur aðstöðu á Höfuborgarstofu, sem er annar fjölsóttasti viðkomustaður ferðamanna í landinu, og hefur Kópavogsbær einkum kynnt lista- og menningarstofnanir bæjarins, sundstaði og útivistarsvæði.</DIV>
<DIV>Umræður um hlutverk Atvinnu- og upplýsinganefndar. Skrifstofustjóri fór yfir hlutverk nefndarinnar í stjórnkerfinu en síðan urðu umræður um atvinnumál almennt. Rætt var um breytingar í atvinnulífinu og þá þróun sem orðið hefur í átt að því sem kallað er skapandi atvinnugreinar og í því samhengi rætt um samstarf nefndarinnar við Lista- og menningarráð og aðrar nefndir í stjórnkerfinu.</DIV>