Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2650. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Rannveig H Ásgeirsdóttir - formaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

Fundargerðir nefnda

01

Afgreiðslur byggingarfulltrúa, 30. júlí

52. fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Umsókn um launað námsleyfi

Lögð fram umsókn Hrafns A. Harðarsonar, bæjarbókavarðar, dags. 30. júlí þar sem óskað er eftir að fá launað námsleyfi í 9 mánuði til að stunda nám í bókmenntum við HÍ 2013-2014.

Bæjarráð vísar erindinu til starfsmannastjóra og bæjarritara til umsagnar.

Ýmis erindi

03

Óskað eftir viðræðum um málefni Fossvogsdals, hugsanlega sundlaug og göngu- og hjólatengingu yfir Fossvog

Lagt fram erindi frá Reykjavíkurborg, dags. 27. júlí, þar sem óskað er eftir viðræðum við fulltrúa Kópavogs um málefni Fossvogsdals í tilefni af nýlegri samþykkt borgarráðs um hugsanlega sundlaug í Fossvogsdal og hugmyndir um göngu og hjólatengingu yfir Fossvog.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til úrvinnslu en gerir fyrirvara um hugmyndir Reykjavíkurborgar um kostnaðarskiptingu.

Ýmis erindi

04

Vogatunga 23. Beiðni um undanþágu til kaupa á fasteigninni

Lagt fram erindi frá Ellert Róbertssyni og Bryndísi Theódórsdóttur, ódags. þar sem óskað er eftir undanþágu til þess að kaupa Vogatungu 23 sem er eign fyrir 60+.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til umsagnar.

Hlé var gert á fundi kl. 8.34. Fundi var fram haldið kl. 8.43.