Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit
Bæjarráð - 2735. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
• Rannveig H Ásgeirsdóttir - formaður
• Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
• Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
• Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
• Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
• Hafsteinn Karlsson - aðalfulltrúi
• Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
• Páll Magnússon
Dagskrá fundar
01
Forvarna- og frístundanefnd, 10. júní
22. fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
02
Stjórn Sorpu bs., 6. júní
337. fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
03
Hagasmári 1, Smáralind, Kaffiveröld ehf. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi
Frá lögfræðideild, dags. 5. júní, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 4. júní, þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um umsókn Kaffiveröld ehf., kt. 540909-0830, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka kaffihús í flokki I, á staðnum Te og Kaffi, að Hagasmára 1 (Smáralindinni), 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir. <?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
04
Rjúpnasalir 1, Chopperinn. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt/breytt rekstrarleyfi
Frá lögfræðideild, dags. 11. júní, lagt fram erindi sýslumannsins í Kópavogi frá 10. júní, þar sem óskað er umsagnar umsögn Kópavogsbæjar um umsókn Ljósborgar ehf., kt. 600575-0319, um nýtt/breytt rekstrarleyfi til að mega reka veitingastað/greiðasölu í flokki II, á staðnum Chopperinn, að Rjúpnasölum 1, Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Þann 15. maí sl. samþykkti bæjarráð rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki I, á sama stað fyrir sömu rekstraraðila.
Bæjarráð hafnar umsókninni fyrir sitt leyti með þremur atkvæðum. Einn greiddi atkvæði með umsókninni en einn bæjarráðsfulltrúi greiddi ekki atkvæði.
05
Kosning fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014-2018
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 6. júní, upplýsingar um kjör fulltrúa á landsþingi Sambandsins óskast fyrir 1. ágúst.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar.
06
Þakkir til fráfarandi bæjarstjórnar Kópavogs fyrir veittan stuðning
Frá íþróttafélaginu Glóð, dags. 5. júní, þakkir færðar bæjarstjórn fyrir stuðning á liðnum árum.
Lagt fram.
07
Upplýsingatækni í grunn- og leikskólum
Forstöðumaður upplýsingatæknideildar gerði grein fyrir vinnu við uppbyggingu þráðlauss nets í grunn- og leikskólum og innleiðingu spjaldtölva.
08
Vargfugl í efri byggðum. Fyrirspurn frá Hafsteini Karlssyni.
Hafsteinn Karlsson hvatti til aðgerða af hálfu bæjarins vegna vargfugls í efri byggðum.
Formaður færði þakkir til ráðsmanna, starfsfólks og íbúa fyrir samstarfið sl. fjögur ár.
Aðrir ráðsmenn taka undir bókun formanns.